Umhverfisviðurkenningar 2019

Umhverfisviðurkenningar eru afhentar í ágúst.
Umhverfisviðurkenningar eru afhentar í ágúst.

Auglýst er eftir tilnefningum til viðurkenninga í umhverfismálum í Kópavogi. Slíkar viðurkenningar eru veittar ár hvert af umhverfis- og samgöngunefnd og bæjarstjórn. Veittar hafa verið viðurkenningar þeim sem þótt hafa skarað fram úr í hönnun, frágangi og viðhaldi umhverfis og húsa.
Viðurkenningar hafa verið veittar ár hvert síðan 1995.
Veittar hafa verið viðurkenningar í eftirfarandi flokkum:

  • - Umhverfi og samfélag
  • - Umhirða húss og lóðar til fyrirmyndar
  • - Endurgerð húsnæðis
  • - Framlag til umhverfismála
  • - Framlag til ræktunarmála
  • - Frágangur húss og lóðar á nýbyggingarsvæðum
  • - Hönnun

Að auki er hægt að tilnefna götu ársins sem bæjarstjórn Kópavogs veitir viðurkenningu. Umhverfisviðurkenningar verða veittar í ágúst.

Hægt er að skila inn tilnefningum til Bjarka Valberg, umhverfisfulltrúa Kópavogs á netfangið Bjarki.Valberg@Kopavogur.is
Frestur til að skila inn tilnefningum er til föstudagsins 14. júní, 2019, kl. 12:00. 

Á heimasíðu Kópavogs er hægt að sjá hverjir hafa hlotið viðurkenningar umhverfis- og samgöngunefndar áður umhverfisráð frá árinu 1995.