Forvarnarsjóður Kópavogs

Auglýst eftir umsóknum um styrki í Forvarnarsjóð Kópavogs.
Auglýst eftir umsóknum um styrki í Forvarnarsjóð Kópavogs.

Forvarnarsjóður Kópavogs auglýsir eftir umsóknum um styrk.

Markmið Forvarnasjóðs er að veita einstaklingum, félagasamtökum, fyrirtækjum og stofnunum styrki til verkefna sem hafa það að leiðarljósi að efla forvarnir, heilsu og vellíðan Kópavogsbúa.

Styrkir úr sjóðnum skulu eingöngu veittir til verkefna með að minnsta kosti eina af eftirtöldum áherslum:

• Verkefni sem snúa að þátttöku barna og ungmenna af erlendum uppruna í samfélaginu með áherslu á íslenskt málumhverfi og hliðsjón af íþrótta- og frítímastarfi. • Forvarnir og heilsuefling í þágu barna og unglinga • Forvarnir í þágu eldri borgara • Bætt lýðheilsa • Verkefni sem innifela samstarf íbúa, félagasamtaka og fyrirtækja í þágu forvarna

Ekki er veittur styrkur til reglubundins reksturs eða reglubundins launakostnaðar eða til sama verkefnis oftar en einu sinni nema sérstakur rökstuðningur fylgi.
Umsóknum skal skila eigi síðar en 14. maí 2020
Bent er á að eingöngu er hægt að sækja um styrk á heimasíðu Kópavogsbæjar, kopavogur.is, undir umsóknir


Frekari upplýsingar um Forvarnarsjóð Kópavogs veita

Amanda K. Ólafsdóttir, deildarstjóri frístundadeildar (amanda.olafsdottir@kopavogur.is) og

Ragnheiður Hermannsdóttir, deildarstjóri grunnskóladeildar (ragnheidur@kopavogur.is)