Upplýsingar um reikninga í íbúagáttinni

skipulagsmál
skipulagsmál

Allir reikningar Kópavogsbæjar svo sem vegna leikskólagjalda, fasteignagjalda og annarra gjalda birtast nú í íbúagáttinni sem nálgast má hér á vef Kópavogsbæjar. Greiðsluseðlar birtast þó áfram í heimabanka og áfram þarf að greiða þá í banka. Kópavogsbúar eru hvattir til að skrá sig í íbúagáttina en þar geta þeir séð reikninga og yfirlit yfir samskipti sín við bæinn.

Tilgangur íbúagáttarinnar er að veita Kópavogsbúum betri rafræna þjónustu. Í gáttinni er til dæmis hægt að sækja um margvíslega þjónustu, senda formleg erindi til bæjaryfirvalda, skoða álagningarseðla fasteigna og aðra reikninga og yfirlit, tengjast beint Mentor grunnskólakerfinu og fylgjast með framgangi sinna mála hjá bænum.

Íbúagáttin var tekin í notkun fyrir rúmu ári og sífellt fleiri bæjarbúar nýta sér hana. Efst til hægri á vef bæjarins er hægt að komast inn í gáttina og skrá sig.

Lendi einhver í vandræðum er hægt að hafa samband við þjónustuver bæjarins í síma: 570 1500 eða með því að senda tölvupóst á kopavogur@kopavogur.is