Uppskeruhátíð spjaldtölvuverkefnis

Frá uppskeruhátíð Spjaldtölvuverkefnis 2017.
Frá uppskeruhátíð Spjaldtölvuverkefnis 2017.

Fulltrúar nemenda úr öllum grunnskólum Kópavogs sýna og segja frá hvernig spjaldtölvan hefur komið að notum í námi og kennslu á uppskeruhátíð spjaldtölvuverkefnis Kópavogsbæjar.

Hátíðin, sem fer fram í Salnum í Kópavogi fimmtudaginn 12. apríl, hefst klukkan 14.30 og lýkur klukkan 16.00.

Tæp tvö ár eru síðan innleiðing spjaldtölva grunnskóla í Kópavogi hófst. Allir nemendur í fimmta til tíunda bekk hafa nú spjaldtölvur til umráða, eða alls um 3000 börn.

Spjaldtölvur í Kópavogi

Markmið spjaldtölvuvæðingar hefur frá upphafi verið að bæta skólastarf í Kópavogi, skólar verði áfram í fremstu röð en skólastarf aðlagist breyttum tímum. Notkun spjaldtölva eykur bæði vægi sköpunar og nýsköpunar í námi og gefur færi á fjölbreytni í kennsluháttum.

Samhliða innleiðingu spjaldtölva í Kópavogi hafa nemendur verið uppfræddir í upplýsinga- og miðlalæsi og lögð áhersla á að efla stafræna borgaravitund, sem þýðir að nemendum er leiðbeint um hvernig þeir eigi að sýna ábyrga hegðun á netinu. Einnig hafa verið haldin námskeið fyrir foreldra bæði um möguleika spjaldtölva í námi og kennslu og hvernig foreldrar geta stuðlað að réttri notkun þeirra heima.

Nánar