Úthlutun í leikskóla fyrir haustið 2024

Úthlutun leikskólaplássa fyrir börn fædd 2022 og fyrr hefst um miðjan mars.
Úthlutun leikskólaplássa fyrir börn fædd 2022 og fyrr hefst um miðjan mars.

Úthlutun leikskólaplássa fyrir börn sem fædd eru árið 2022 og fyrr hefst um miðjan mars.

Umsóknir sem koma eftir 11.mars fara á bið/frystingu á meðan úthlutun stendur. Gert er ráð fyrir því að seinni hluti úthlutunar fari fram í apríl/maí. Í seinni hluta úthlutunar verður farið yfir nýjar umsóknir og flutningsumsóknir sem berast eftir 11. mars og umsóknir barna fædd í fyrri hluta árs 2023.

Fyrra úthlutunartímabilið stendur yfir í um það bil tvær vikur og fá foreldrar úthlutunarbréf rafrænt á meðan á því stendur.

Ekki liggur fyrir að svo stöddu hversu mörg börn fædd á árinu 2023 fá úthlutun fyrir haustið. Nánari upplýsingar um úthlutun vegna barna fædd árið 2023 verða veittar þegar dregur að seinni úthlutun.

Kópavogsbær rekur 19 leikskóla en að auki eru tveir einkareknir og einn þjónusturekinn leikskóli í bænum.

Sótt er um leikskólapláss https://umsokn.vala.is/ eða í þjónustugátt Kópavogsbæjar.