Útskriftarsýning í Gerðarsafni

Auglýsing viðburðarins
Auglýsing viðburðarins

Útskriftarsýning meistaranema í myndlist og hönnun við Listaháskóla Íslands verður opnuð í Gerðarsafni laugardaginn 6. maí kl. 14.

Alþjóðlegt meistaranám í myndlist og hönnun hófst í Listaháskóla Íslands haustið 2012 og er þetta fjórði árgangur meistaranema sem sýnir útskriftarverkefni sín í Gerðarsafni. Á sýningunni má sjá afrakstur tveggja ára háskólanáms þar sem fimm hönnuðir og fimm myndlistarmenn hafa fengið tækifæri til að þróa og styrkja rannsóknir sínar á viðkomandi fagsviðum undir leiðsögn leiðandi hönnuða og myndlistarmanna. Áhersla er lögð á skapandi og greinandi hugsun sem nýtist við framsækin verkefni á sviðum hönnunar og myndlistar á Íslandi.

Sýningin er hluti af útskriftarhátíð listaháskólanema en nokkrir útskriftartónleikar fara fram í Salnum í Kópavogi.  

Yfirlit yfir alla útskriftartónleika

Vefsíða Salarins

Nánar um sýningu í Gerðarsafni:

 

MA námi í myndlist er nemendum skapaður vettvangur til að dýpka og auka þekkingu sína á sviði samtímamyndlistar, styrkja persónulega sýn og tengja listsköpun sína við fræðilegar forsendur fagsins. Í MA námi í hönnun er sjónum beint að aðkallandi viðfangsefnum í samtímanum og nemendur hvattir til að beita ímyndunarafli, innsæi, gagnrýnni og greinandi hugsun til þess að hafa jákvæð áhrif á samfélagið og þær samfélagsbreytingar sem við okkur blasa.

 

Útskriftarnemendur í MA hönnun

Angela Edwiges Salcedo Miranda
Lisa Gaugl
Maria Enriqueta Saenz Parada
Sölvi Kristjánsson
Þorbjörg Valdimarsdóttir

Útskriftarnemendur í MA myndlist

Ásgrímur Þórhallsson
Florence So Yue Lam
Ingunn Fjóla Ingþórsdóttir
Maria Helene Van Veen Aas
Myrra Leifsdóttir

Sýningarstjóri

Dorothée Kirsch

Leiðsagnir

Sunnudagur 14. maí kl. 15
Leiðsögn með nemendum í myndlist

Sunnudagur 21. maí kl. 15
Leiðsögn með nemendum í hönnun
Síðasti sýningardagur