Vefur Kópavogs með þeim bestu

Bestu vefir sveitarfélaga og ríkisstofnana að lokinni úttekt. Mjótt er á munum sem sjá má.
Bestu vefir sveitarfélaga og ríkisstofnana að lokinni úttekt. Mjótt er á munum sem sjá má.

Vefur Kópavogs er í hópi bestu vefja íslenskra sveitarfélaga. Vefurinn var stigahæstur ásamt vef Reykjavíkurborgar og Akureyrar en vefur Reykjanesbæjar og Fljótsdalshéraðs fylgdi fast á eftir.

Niðurstaða á úttekt á opinberum vefjum var kynnt á UT degi Ský, Skýrslutæknifélags Íslands, sem fram fór á Grand Hótel fimmtudaginn 30. nóvember. 

Bestu ríkisvefirnir þóttu vefur Neytendastofu, Háskóla Íslands, Þjóðskrár Íslands, Stjórnarráði og Ríkisskattstjóra.

Viðmótsþættir á boð við upplýsingagjöf, þjónusta, þátttaka og aðgengi voru skoðaðir. Mjótt var á munum á meðal fimm efstu vefja.

Þriggja manna dómnefnd fékk svo það hlutverk að útnefna besta vefinn, eftir reynslu af notkun. Dómnefndin valdi vef Reykjavíkurborgar besta vef sveitarfélags og vef Stjórnarráðsins besta vef ríkisstofnana.

Úttekt á vefjum íslenskra sveitarfélaga, ríkisstofnana, vefjum opinberra hlutafélaga og annarra fyrirtækja undir yfirskriftinni Hvað er spunnið í opinbera vefi? fer fram annað hvert ár. Úttekt gera Sjá viðmótsprófanir ehf. og Svavar Ingi Hermannsson öryggissérfræðingur.

Dómnefndina skipuðu Marta Kristín Lárusdóttir lektor í Háskólanum í Reykjavík, Tinni Sveinsson þróunarstjóri 365 og Margrét Kristín Sigurðardóttir forstöðumaður almannatengsla hjá Samtökum iðnaðarins.