- Íbúar
- Börn og ungmenni
- Íþróttir & útivist
- Velferð
- Þjónusta
- Skipulagsmál
- Byggingarmál
- Samgöngur
- Umhverfi
- Menning
- Íbúaverkefni
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- þjónustugátt
- Ábendingar
Fræðsluvefurinn Þar á ég heima hefur verið opnaður en á honum er að finna fræðsluefni fyrir krakka, unglinga og alla áhugasama um umhverfið og náttúruna í Kópavogi.
Námsefnið er unnið í tengslum við innleiðingu Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna í Kópavogi. Ein af aðgerðum innleiðingarinnar felst í „að virkja áhuga barna á umhverfismálum, fræða þau og leyfa þeim að taka þátt.
Á vefnum er að finna alls kyns skemmtilegan fróðleik um jarðfræði, líffræði og landafræði auk þess sem hægt er að spreyta sig á spennandi og fjölbreyttum verkefnum.
Fjallað er um náttúrunni víðs vegar um Kópavoginn, sjálfbærni og umgengni mannsins við umhverfið og náttúruna.
Helstu markmið með vefnum eru að notendur:
Aðalhöfundur efnis er Sólrún Harðardóttir.
Í vinnuhóp sátu: Anna Elísabet Ólafsdóttir sérfræðingur í lýðheilsumálum, Finnur Ingimarsson forstöðumaður Náttúrufræðistofu Kópavogs, Ósk Kristinsdóttir kennari í Snælandsskóla, Ragnheiður Hermannsdóttir deildarstjóri grunnskóladeildar og Sveinbjörg Björnsdóttir verkefnastjóri Marbakka.