Vel heppnuð Aðventuhátíð

Gestir á Aðventuhátíð Kópavogs.
Gestir á Aðventuhátíð Kópavogs.

Tendrað var á jólatréi Kópavogsbæjar á Aðventuhátíð Kópavogs sem haldin var venju samkvæmt daginn fyrir fyrsta sunnudag í aðventu.

Fjölmenni var á útiskemmtun þar sem Skólahljómsveit Kópavogs lék, Margrét Friðriksdóttir forseti bæjarstjórnar fluti ávarp og tendraði á tréinu, Villi og Sveppi skemmtu og jólasveinar stýrðu dansi í kringum jólatré. Kynnir var Lalli töframaður. Áður en útiskemmtun hófst, en hún fór fram á útivistarsvæði við menningarhúsa bæjarins, var boðið upp á dagskrá í Salnum, Gerðarsafni, Bókasafni Kópavogs og Náttúrufræðistofu Kópavogs.