Vel heppnuð Aðventuhátíð

Það var mikið um dýrðir á Aðventuhátíð Kópavogsbæjar á laugardaginn.

Ljósin á jólatré bæjarins voru tendruð kl. 16 en það var Elísabet Sveinsdóttir, forseti bæjarstjórnar, ásamt barnabörnum sínum sem tendraði ljósin í ár. Tréð kemur úr heimabyggð en það er úr Guðmundarlundi.

Rófa, yngsta systir jólasveinanna ásamt bróður sínum Hurðaskelli sáu um skemmtunina og leiddu svo bræður sína og aðra gesti í söng og dans í kring um tréð.

Dagskráin hófst þó fyrr en kl. 13.00 fór af stað metnaðarfull dagskrá menningarhúsanna og gátu öll fundið eitthvað við sitt hæfi.