Vel heppnuð Vináttuganga

Vináttuganga í skólahverfi Álfhólsskóla 2019.
Vináttuganga í skólahverfi Álfhólsskóla 2019.

Vináttuganga í skólum Kópavogs fór fram föstudaginn 8.nóvember á baráttudegi gegn einelti. Þetta er í sjöunda sinn sem gengið er gegn einelti í Kópavogi og var dagskrá í skólahverfum bæjarins í tengslum við gönguna.

Alls tóku um átta þúsund þátt í dagskrá dagsins. Í flestum hverfum sóttu skólabörn leikskólabörn og var gengið fylktu liði á áfangastað. Þar tók við söngur, dans og leikir.

Markmið Vináttugöngunnar er að stuðla að jákvæðum samskiptum, vekja athygli á mikilvægi vináttu og virðingar og benda á að einelti verður ekki liðið.

Gangan eflir samstöðu og vináttu barna og hefur þannig haft jákvæð áhrif á skólastarf í bænum. Með göngunni leggur Kópavogsbæ sitt lóð á vogarskálarnar í baráttunni gegn einelti