Viðurkenning fyrir opinber innkaup

Lilja Ástudóttir, önnur frá hægri, ásamt innkaupastjórum og fulltrúum Ríkiskaupa við afhendingu við…
Lilja Ástudóttir, önnur frá hægri, ásamt innkaupastjórum og fulltrúum Ríkiskaupa við afhendingu viðurkenninga á innkaupadeginum 2018.

Innkaupastjóri Kópavogsbæjar Lilja Ástudóttir hlaut viðurkenningu hjá Ríkisskaupum á innkaupadeginum 2018. 

Ríkiskaup veittu í fyrsta sinn, á innkaupadeginum 2018, viðurkenningar til opinberra aðila vegna framúrskarandi árangurs og vinnubragða þegar kemur að opinberum innkaupum. Þrír aðilar hlutu viðurkenningu að þessu sinni: Kristján Valdimarsson, deildarstjóri innkaupadeildar fyrir hönd Landsspítala-  Háskólasjúkrahúss, Lilja Ástudóttir, innkaupastjóri fyrir hönd Kópavogsbæjar og Jón Ingi Benediktsson, innkaupastjóri fyrir hönd Reykjanesbæjar.

 

"Kópavogsbæ er veitt viðurkenning fyrir óþrjótandi kraft og samstarfsvilja sem hefur reynst rammasamningsteymi Ríkiskaupa ómetanlegur liðsauki. Árvekni og aðhald vegna rammasamninga og notkun þeirra er okkur þar efst í huga," segir í umsögn Ríkiskaupa.

Í umsögn um viðurkenningu Landspítala kom fram að til grundvallar hefði verið fyrst og fremst áhersla Landspítala á vistvæn innkaup og þau fjölmörgu verkefni sem Landspítalinn hefur unnið þar sem sjálfbærni er höfð að leiðarljósi, jafnt í innkaupaverkefnum sem og við aðlögun ferla og aðferða.

Reykjanesbær fær viðurkenningu fyrir frumkvæði sem sveitarfélagið sýndi við kaup á ritföngum fyrir grunnskólana, sem fram fór í örútboði innan rammasamnings. Í kjölfarið tóku Ríkiskaup við boltanum og buðu þessi kaup út sameiginlega fyrir fjölmörg sveitarfélög í sameiginlegu örútboði.