- Íbúar
- Börn og ungmenni
- Íþróttir & útivist
- Velferð
- Þjónusta
- Skipulagsmál
- Byggingarmál
- Samgöngur
- Umhverfi
- Menning
- Íbúaverkefni
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- þjónustugátt
- Ábendingar
Vináttuganga í skólum Kópavogs fer fram föstudaginn 8.nóvember, á baráttudegi gegn einelti. Gangan fer nú fram í sjöunda sinn og er sem fyrr á dagskrá í skólahverfum bæjarins í tengslum við gönguna.
Markmið Vináttugöngunnar er að stuðla að jákvæðum samskiptum, vekja athygli á mikilvægi vináttu og virðingar og benda á að einelti verður ekki liðið. Gangan eflir samstöðu og vináttu barna og hefur þannig haft jákvæð áhrif á skólastarf í bænum. Með göngunni leggur Kópavogsbær sitt lóð á vogarskálarnar í baráttunni gegn einelti.
Yfir átta þúsund tóku þátt í göngunni í fyrra og ríkti mikil ánægja með hvernig til tókst.