Vorhreinsun í Kópavogi

Fegrum Kópavog saman logo
Fegrum Kópavog saman logo

Íbúar í Kópavogi eru hvattir til að leggja Kópavogsbæ lið í vorhreinsun á bæjarlandi sem skipulögð er við lóðir grunnskólanna í bænum laugardaginn 16. apríl, mánudaginn 18. apríl og þriðjudaginn 19. apríl.

Fegrum Kópavog saman er heiti átaksins sem verður hrint af stokkunum á laugardag í Kársnesskóla, Snælandsskóla og Kópavogsskóla. Tekið verður til á skólalóðunum og í hverfunum um kring frá klukkan 11 til 13.30. 

 

Mánudaginn 18. apríl verður vorhreinsun í Álfhólsskóla, Smáraskóla og Lindaskóla frá 16.30 til 19.00. 

Þriðjudaginn 19. apríl verður svo hreinsað í Salaskóla, Hörðuvallaskóla og Vatnsendaskóla frá 16.30 til 19.00.

Ruslapokar og gámar verða á staðnum auk þess sem boðið er upp á léttar veitingar. Það er nýbreytni hjá Kópavogsbæ að leita liðsinnis íbúa í bænum í árlegri vorhreinsun.

Eins og venja er hirðir Kópavogsbær garðaúrgang bæjarbúa. Sú hreinsun er skipulögð eftir hverfum og fer fram dagana 18.apríl til 6.maí.  Hirðing er venju samkvæmt skipulögð eftir hverfum, og er röðin þessi: Vestur- og Austubær 18.-22 apríl. Smára-, Linda- og Salahverfi 25.-28. apríl, Kórar, Hvörf og Þing i 2.-6. maí.  Íbúar eru beðnir um að setja garðaúrgang utan við lóðarmörk í pokum og bindið greinaafklippur í knippi. Athugið að hirðing á ekki við lausan jarðveg, timbur, málma og spilliefni.  

Þá er unnið að hreinsun gatna og stíga í bænum eftir veturinn og stefnt að því að henni ljúki í apríl.