Aðventuhátíð Kópavogs

Frá Aðventuhátíð 2017
Frá Aðventuhátíð 2017
Aðventuhátíð Kópavogs verður haldin laugardaginn 2. desember en við það tilefni verða ljósin á jólatré Kópavogsbæjar við menningarhúsin tendruð.

Ævintýrapersónur úr Jólaskógi stíga á svið og jólasveinar bregða sér í bæinn en ljósin á trénu verða tendruð klukkan 16.00 þar sem fram kemur Kór Hörðuvallaskóla. Skólahljómsveit Kópavogs flytur jólatónlist frá 15:40.

Frá klukkan 13 verður boðið upp á fjölbreytta aðventudagskrá fyrir alla fjölskylduna. Ilmandi aðventuóróar, úkraínskt hátíðarskraut, lifandi tónlist og notaleg aðventustemning.

Hægt verður að kaupa ljúffengar veitingar frá Krónikunni í Gerðarsafni og í Forsal Salarins en þar verður jólamarkaður með fallegu handverki frá Hlutverkasetri, Tau frá Tógó og Ás vinnustofu.

Ljúfir hátíðartónar hljóma í flutningi kóra og tónlistarhópa. Á útisvæði verður hinn ómissandi Möndlubás með ristaðar aðventumöndlur til sölu.

Verið hjartanlega velkomin.
 
 Aðventusmiðjur
13:00 - 15:45 Óróasmiðja ÞYKJÓ (Bókasafn)
13:00 - 15:45 Jólaperlusmiðja (Bókasafn)
13:00 - 15:45 Úkraínsk aðventusmiðja (Gerðarsafn)
13:00 - 15:45 Jólaskúlptúrsmiðja (Salurinn)
 
Jólasögustund í Náttúrufræðistofu
14:00 - 14:15 Jólakötturinn með Arndísi Þórarinsdóttur
15:00 - 15:15 Jólakötturinn með Arndísi Þórarinsdóttur (Náttúrufræðistofa)
 
Jólaörtónleikar
14:00 - 14:15 Samkór Kópavogs (Salurinn)
14:15 - 14:30 Kór Hörðuvallaskóla (Gerðarsafn)
14:30 - 14:45 Kvennakór Kópavogs (Salurinn)
15:15 - 15:30 Barnakór Smáraskóla (Bókasafn)
15:40 - 16:00 Skólahljómsveit Kópavogs (Útisvæði)
 
Jólasveifla í Salnum
15:00 - 15:40 Kjalar Martinsson Kollmar, söngur og píanó, Alexander Grybos, gítar, Hlynur Sævarsson, kontrabassi
 
Jólamarkaður í Salnum
13:00 - 16:00
Fallegt handverk til sölu frá Hlutverkasetri, Tau frá Tógó og Ás vinnustofu
 
Tendrun jólatrésins
16:00 - 16:30
Ævintýrapersónur úr Jólaskógi ásamt Kór Hörðuvallaskóla.
Jólasveinar mæta í bæinn og dansa í kringum jólatréð.
Bókasafn og Náttúrufræðistofa eru opin frá 11:00 - 17:00 og Gerðarsafn frá12:00 - 18:00.
Veitingasala Krónikunnar verður í Gerðarsafni og í Salnum og Möndlubásinn verður með ilmandi möndlur til sölu á útisvæði frá 13:00 - 17:00.
 
Njótum aðventunnar saman