Aðventuhátíð Kópavogs

Aðventuhátíð Kópavogs verður haldin 29.nóvember.
Aðventuhátíð Kópavogs verður haldin 29.nóvember.

Verið hjartanlega velkomin á aðventuhátíð Kópavogsbæjar laugardaginn 29. nóvember. Dagskrá verður á útisvæði og í menningarhúsum frá kl. 15-17. Dagskrá á útisviði hefst kl. 16:30 sem endar á því að Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri tendrar ljósin á jólatré Kópavogsbæjar.Salka Sól verður kynnir á útisvæði. Jólatufti frá Pilkington Props verður á vappi utandyra ásamt jólasveinum. Karlakór Kópavogs tekur lagið og Skólahljómsveit Kópavogs flytur hátíðleg jólalög.

Í menningarhúsunum verða fjölbreyttar smiðjur fyrir allan aldur og tónlistaratriði frá kórum, tónlistarskólanum og strengjakvartett. Tækifæri gefst til að æfa klassísku jólalögin, gera næringarríka jólaköngla fyrir smáfuglana og gera föndur að taívönskum og úkraínskum sið.

Í Gerðarsafni, Salnum, Náttúrusafni og Bókasafni Kópavogs verða stimpilstöðvar þar sem þú getur skapað þitt eigið jólakort, hannað af BrummBrumm í fjórum skrefum. Þú finnur allar fjórar stimpilstöðvarnar og smám saman birtist mynd á kortinu þínu.

DAGSKRÁ

Útisvæði / útisvið kl 15:00-17:00

15:00-16:15 DJ Sunna Ben á útisviði
15:00-16:15 Jólatufti, jólasveinn á stultum og fleiri óvæntir viðburðir
16:30 – 17:00 Dagskrá á útisviði. Jólaskemmtun og ljósin tendruð á útisvæði menningarhúsanna. Salka Sól, Skólahljómsveit Kópavogs og Karlakór Kópavogs koma fram. Rófa úr Jólalundi stýrir jólatrésskemmtun og jólasveinar mæta á svæðið

Menningarhús 15:00-16:30

Gerðarsafn
15:00-16:30 Stimpilstöð – prentaðu þitt eigið jólakort
15:00-16:30 Jólapappírsgerð
15:00-16:00 Gjörningar í tengslum við sýninguna Skúlptúr skúlptúr Performans
15:15-15:30 Blásarar frá Tónlistarskóla Kópavogs koma fram
15:45-16:00 Samkór Kópavogs syngur

Salurinn
15:00-16:30 Stimpilstöð – prentaðu þitt eigið jólakort
15:00-16:30 Kakó og úkraínskt jólagóðgæti í boði
15:00-15:15 Kórinn Viðlag
15:30-15:45 Kvennakórinn Blika
16:00-16:30 Hjörleifur Valsson fiðluleikari og Jónas Þórir píanóleikari

Bókasafn Kópavogs
15:00-16:30 Stimpilstöð – prentaðu þitt eigið jólakort
15:00-16:30 Armbandasmiðja
15:00-16:30 Klippiföndur frá Taívan með GETA
15:00-16:30 Úkraínskt Pavuk jólaföndur með GETA
15:00-15:30 Æfum jólalögin saman með Sigga & Ingibjörgu
15:30-16:30 Tónleikar frá nemendum Tónlistarskóla Kópavogs

Náttúrusafn Kópavogs
15:00-16:30 Stimpilstöð – prentaðu þitt eigið jólakort
15:00-16:30 Ó!rói smiðja með ÞYKJÓ
15:00-16:30 Jólakönglar fyrir smáfuglana