Aðventuhátíð Kópavogs aldrei fjörugri

Jólaljósin verða tendruð í Kópavogi um helgina.
Jólaljósin verða tendruð í Kópavogi um helgina.

Aðventuhátíð Kópavogsbæjar verður haldin laugardaginn 30. nóvember þar sem jólaljósin á vinabæjartrénu á Hálsatorgi verða tendruð. Hátíðardagskráin hefur aldrei verið umfangsmeiri og fjölbreyttari. Rauðhetta og úlfurinn frá Leikhópum Lottu ætla að stjórna henni með söng og dansi á torginu en hátíðin teygir anga sína yfir í menningarhúsin á Borgarholtinu.

Eyþór Ingi Evróvisjón-söngvari með meiru tekur lagið, jólasveinar kíkja við, jólahús prýða torgið full af góðgæti og gjafavörum, Karlakór Kópavogs syngur í Gerðarsafni, jólakötturinn verður á Bókasafni Kópavogs og sölusýning á hönnun og handverki verður í safnaðarheimili Kópavogskirkju.

Jólatréð á Hálsatorgi er gjöf frá Norrköping í Svíþjóð og mun sendiherra Svíþjóðar, Bosse Hedberg, afhenda það formlega um kl. 15:00. Margrét Björnsdóttir, forseti bæjarstjórnar, tekur við því formlega fyrir hönd Kópavogsbæjar.

Dagskráin á Hálsatorgi hefst þó klukkutíma fyrr, eða kl. 14:00, þar sem félagasamtök úr Kópavogi ætla að opna sölubása í litlum jólahúsum á torginu þar sem hægt verður að kaupa kakó, kleinur og ýmsan jólavarning og styrkja um leið gott málefni.

Í fyrsta sinn verða 22 listamenn með sölusýningu á handverki og listiðn í safnaðarheimili Kópavogskirkju á Borgarholtinu. Sönghópar sjá um að skapa jólastemningu. Sýningin er opin frá kl. 12:00 til 18:00.

 

Dagskráin í heild sinni er sem hér segir: 

Listasafn Kópavogs - Gerðarsafn

Kl. 11-17

Íslenska teiknibókin  - 350 ára afmæli Árna Magnússonar

Nýstárleg sýning á Íslensku teiknibókinni. Teiknibókin er einstæð meðal handrita í safni Árna Magnússonar, hún inniheldur safn fyrirmynda sem listamenn fyrri alda nýttu sér.

kl. 15.00 Guðbjörg Kristjánsdóttir safnstjóri mun vera með leiðsögn um sýninguna.

kl. 16.00 Karlakór Kópavogs undir stjórn Garðars Cortes og stórskemmtilegt djass tríó frá Svíþjóð.

Safnaðarheimili Kópavogskirkju

Kl. 12-18

Allir fá þá eitthvað fallegt…“

Hönnun og handverk í Kópavogi

22 aðilar sýna íslenska listiðn, handverk og hönnun í safnaðarheimili Kópavogskirkju. 

Þetta er einstakt tækifæri til að kynna sér skapandi kraft hönnuða í Kópavogi og ætti enginn að láta sýninguna framhjá sér fara! 

Hálsatorg

Kl. 14.00 Félagasamtök úr Kópavogi opna sölubása og skapa jólastemningu.

Kl. 15.00 Tendrað á ljósum vinabæjarjólatrés.

Rauðhetta og Úlfurinn sjá um að kynna dagskrána.

Skólahljómsveit Kópavogs spilar jólalög.

Sendiherra Svíþjóðar, Bosse Hedberg, afhendir vinabæjartréð frá Norrköping.

Forseti bæjarstjórnar, Margrét Björnsdóttir, tekur á móti jólatrénu fyrir hönd Kópavogsbæjar.

Eyþór Ingi tekur lagið.

Jólaball á Hálsatorgi. Jólasveinar, söngur og gleði!

Laufabrauðsdagurinn á Gjábakka

Kl. 13.00  Handverksmarkaður opnar og laufabrauðsgerðin hefst.

Kl. 13.00 Tríóið Friends4ever.

Kl. 14.00 Samkór Kópavogs.

Kl. 15.15 Skólahljómsveit Kópavogs.

Veitingar, kaffi og súkkulaði verður afgreitt í kaffiteríu frá kl. 13.30 til 16.30 

Bókasafn Kópavogs og Náttúrufræðistofa

Jólakötturinn verður á kreiki í Safnahúsinu milli kl. 14 og 15 og heilsar upp á krakka.
Í Kórnum í Safnahúsinu verður boðið upp á skemmti- og fræðsluerindi um jólaköttinn í máli og myndum fyrir 4-6 ára börn og slóð kattarins verður rakin um húsið og lesin skemmtileg jólasaga.

Dýrin í Náttúrufræðistofunni skrýðast jólabúningi.

Nýjar og gamlar jólabækur eru til útláns í bókasafninu.

Myndlistarmenn

Listamenn í Kópavogi hafa tekið sig saman og opna vinnustofur sínar.

Komið og skoðið listamenninguna í Kópavogi, heitt á könnunni og allir velkomnir í jólastemningu og smitandi gott jólaskap.

Anarkía Listasalur, Hamraborg 3. Opið 30. nóv. og 1. des. kl. 14-18

Glergallerí: Jónas Bragi og Catherine Dodd, Auðbrekku 7. Opið 30. nóv. kl. 13-17.

Jón Adolf Steinólfsson, Dalvegi 16c –gegnt sýslumanninum. Opið 30. Nóv. og 1. des. kl. 13-17.

Listamenn ART11, Auðbrekku 4, 3. hæð. Opið 30. Nóv. og 1. des. kl. 13-17. Gengið inn að ofanverðu.

Listamenn í Norm-X húsinu Auðbrekku 6, 2. og 3. hæð. Opið 30. nóv. kl. 13-17.

Sólrún Halldórsdóttir, Hraunbraut 36. Opið 30. nóv. kl. 13-17.

Stúdíó Subba, Hamraborg 1-3. Opið 30. nóv og 1. des kl. 13-17.