Á myndinni eru frá vinstri: Natalie T.N.Antonsdóttir forstöðumaður, Guðrún Ásta Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri Samhjálpar og Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri Kópavogs.
Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri Kópavogs og Guðrún Ásta Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri Samhjálpar skrifuðu undir samning um áframhaldandi rekstur á áfangaheimili við Dalbrekku í Kópavogi, miðvikudaginn 21. janúar.
Áfangaheimilið tók til starfa í loks árs 2017 og geta alls átta karlar verið þar í búsetu.
Dalbrekka er hugsað sem tímabundið heimili þar sem íbúar fá einstaklingsmiðaða þjónustu sem felur í sér stuðning, leiðsögn, kennslu og eftirfylgd til að ástunda edrúmennsku, byggja upp bata, koma á rútínu í daglegu lífi og efla færni og getu til að takast á verkefni hvers dags. Langtíma markmiðið er að íbúar tileinki sér heilbrigðari lífsstíl, öðlist færni til sjálfstæðrar búsetu og auki færni sína til þátttöku í venjubundnu lífi með virkni, launuðu starfi eða námi.
Samráð og samstarf er viðhaft um málefni íbúa og hefur félagsráðgjafi velferðarsviðs reglubundna viðveru á heimilinu.
Samstarf Kópavogsbæjar við Samhjálp hefur verið farsælt og árangursríkt.
Nýr samningur gildir til ársloka 2027.

Á myndinni eru frá vinstri: Natalie T.N.Antonsdóttir forstöðumaður, Guðrún Ásta Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri Samhjálpar, Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri, Sigrún Þórarinsdóttir sviðsstjóri velferðarsviðs og Rannveig María skrifstofustjóri félagslegs húsnæðis.