Algirdas Slapikas sjálfboðaliði ársins 2024

Algirdas Slapikas sjálfboðaliði ársins 2024.
Algirdas Slapikas sjálfboðaliði ársins 2024.

Sjálfboðaliði ársins í 2024 í íþróttastarfi er Algirdas Slapikas, formaður íþróttafélagsins Stál Úlfs. Valið var tilkynnt á íþróttahátíð Kópavogs og er þetta í annað sinn sem íþróttaráð velur sjálfboðaliða ársins.

Algirdas Slapikas, formaður íþróttafélagsins Stál Úlfs hefur verið sjálfboðaliði í framlínu félagsins í 15 ár samfleytt.

Á vegum félagsins er spilaður körfuknattleikur og blak, ásamt fótbolta eldri flokka. Yfirgnæfandi meirihluti iðkenda er af erlendu bergi brotinn og er þátttaka þeirra í íþróttum bæði gefandi en einnig mjög mikilvæg þar sem að hún eflir aðlögun að íslensku samfélagi.

„Undantekningalaust er Algirdas á öllum leikjum félagsins þar sem hann er ávallt tilbúin að gegna ýmsum stoðhlutverkum. Hann réttir ávallt fram hjálparhönd til allra tilfallandi verkefna, hvort sem það er að sitja við ritaraborðið, línuvarsla eða hvað annað sem gera þarf hverju sinni til að tryggja farsælan framgang allra skipulagðra leikja, móta sem og annarra viðburða,“ segir í umsögn íþróttaráðs.

Auk þess að vera sjálfboðaliði er Algirdas sjálfur afskaplega öflugur íþróttamaður. Á þessu ári varð hann Íslandsmeistari í fótbolta með eldri flokk Stál Úlfs í 40+ deildinni en auk þess varð hann einnig Íslandsmeistari í einliðaleik í tennis innanhús í flokki 30+.