Fundur með sóttvarnarlækni

Fundur almannavarnarnefndar höfuðborgarsvæðisins.
Fundur almannavarnarnefndar höfuðborgarsvæðisins.

Almannavarnarnefnd höfuðborgarsvæðisins kom saman föstudaginn 31.janúar að beiðni sóttvarnalæknis. Tilefni fundarins var samræming og skipulag viðbragða við kórónuveirunni (2019-nCoV). Sóttvarnalæknir fór yfir hlutverk höfuðborgarsvæðisins í viðbrögðum ef og þegar veiran kemur upp á Íslandi.

Sóttvarnalæknir og Embætti landlæknis hafa lýst yfir óvissustigi vegna kórónuveirunnar. Kópavogsbær hefur þegar hafið undirbúning að viðbrögðum vegna veirunnar sem felst m.a. í því að tryggja órofna þjónustu. Stjórnendur Kópavogsbæjar verða í kjölfarið upplýstir um nauðsynlegar forvarnaraðgerðir og aðgerðir.

Sóttvarnalæknir og Almannavarnir ríkisins munu upplýsa almenning jafnóðum um þróun mála en þessir aðilar hafa yfirumsjón með viðbrögðum vegna veirunnar.

Allar nauðsynlegar upplýsingar um kórónuveiruna (2019-nCoV) og viðbrögð við henni má finna inn á vefsíðu Landlæknis www.landlaeknir.is