Áhrif illviðris á þjónustu Kópavogsbæjar

Appelsínugul viðvörun er á höfuðborgarsvæðinu 26.mars sem hefur margvísleg áhrif á þjónustu bæjarin…
Appelsínugul viðvörun er á höfuðborgarsvæðinu 26.mars sem hefur margvísleg áhrif á þjónustu bæjarins.

Spáð er illviðri fimmtudaginn 26.mars og er appelsínugul viðvögun í gildi frá 07 til 13 á höfuðborgarsvæðinu. Mælst til þess að fólk haldi sig heima á meðan veður gengur yfir. English below.

Um starfsemi og þjónustu 

Þjónustuver: Símsvörun verður í Þjónustuveri. 

Sundlaugar: Sundlaugar eru lokaðar þar til veður gengur yfir 

Menningarhús: Bókasafn Kópavogs er opið en þjónusta verður skert. Önnur menningarhús lokuð til 13. 

Velferðarþjónusta: Velferðarþjónustu hefur verið forgangsraðað og þjónustuþegar látnir vita ef þjónusta fellur niður. 

Skólar: Röskun verður á leik- og grunnskólastarfi.

Leik- og grunnskólar eru opnir en ekki verður um hefðbundið starf að ræða á meðan á appelsínugulri viðvörun stendur. Hefðbundið leikskóla, grunnskóla og frístundastarf hefst eftir að viðvörun lýkur.

Hér má sjá upplýsingar: Röskun á skólastarfi | Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins

Nánar um veður og færð

Appelsínugul viðvörun vegna veðurs er í gildi frá kl. 7-13 og um tíma má búast við mikilli ofankomu og afleitu skyggni. Veður verður orðið skaplegt strax eftir hádegi og gott er ef fólk frestar ferðum sínum fram að þeim tíma að minnsta kosti. Með þessu móti gefst líka miklu betra tækifæri til að ryðja snjó af vegum, en slíkt er afar erfitt ef margir bílar eru fastir í ófærð. Öll snjómoksturstæki verða kölluð út.

Við hvetjum öll til að fylgjast mjög vel með fréttum og veðurfréttum, bæði í kvöld og ekki síst snemma í fyrramálið.

Minnum líka á nauðsyn þess að huga að lausamunum, moka af svölum og huga að niðurföllum til að forðast tjón.

Tenglar

Veðurviðvaranir

Vefur Vegagerðarinnar

Influence of weather on service and instititutions in Kópavogur

An Orange Weather Warning will be in effect tomorrow from 07:00 AM to 01:00 PM. Due to the weather, people are advised to stay home until the weather passes.

Swimming pools are closed until weather is better.

Culture houses are closed until 1 pm.

Welfare service has been priorized.

Schools: Preschool and elementary school activities will be disrupted tomorrow. Preschools and elementary schools will be open, but normal operations will not take place while the orange alert is in effect. Normal preschool, elementary school, and after-school activities will resume after the alert ends.

Information can be found here: Röskun á skólastarfi | Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins

Further information

An orange weather warning is in effect from 7 am to 1 pm and heavy precipitation and reduced visibility can be expected for a while. The weather will become pleasant immediately after noon and it is good if people postpone their trips until then at least. This also gives a much better opportunity to clear snow from the roads, which is very difficult if many cars are stuck in impassable areas.

We encourage everyone to pay close attention to the news and weather reports, both tonight and especially early tomorrow morning.

We also remind you of the need to pay attention to loose objects, shovel off balconies and pay attention to drains to avoid damage.