AUGLÝST EFTIR BÆJARLISTAMANNI 2022

AUGLÝST EFTIR BÆJARLISTAMANNI 2022
AUGLÝST EFTIR BÆJARLISTAMANNI 2022

Lista- og menningarráð Kópavogs auglýsir eftir umsóknum eða ábendingum um bæjarlistamann Kópavogs. Þeir listamenn koma einir til greina sem eiga lögheimili í Kópavogi.
Bæjarlistamaður Kópavogs skal vera tilbúinn til að vinna með Kópavogsbæ að því að efla áhuga á list og listsköpun í bænum og taka þátt í viðburðum bæjarins með það að leiðarljósi.

Styrkupphæð bæjarlistamanns er 1,5 milljónir króna.

 

Lista- og menningarráð fer yfir umsóknir og ábendingar.
Í þeim skulu koma fram upplýsingar um náms- og starfsferil viðkomandi og hugmyndir um með hvaða móti bæjarlistamaður hyggst auðga lista- og menningarlíf bæjarbúa.

HÆGT ER AÐ SENDA INN UMSÓKN EÐA ÁBENDINGU FYRIR 16. APRÍL Á NETFANGIÐ MENNING@KOPAVOGUR.IS.