Aukin endurvinnsla í Kópavogi

Plast og pappír fer í bláu tunnurnar í Kópavogi.
Plast og pappír fer í bláu tunnurnar í Kópavogi.

Góðar undirtektir eru í Kópavogi við aukna þjónustu í sorphirðumálum. Frá því að heimilt var að setja plast í bláu tunnurnar hefur magn í þeim aukist verulega sem þýðir aukna endurvinnslu Kópavogsbúa. Kópavogsbær jók þjónustu í sorphirðu í nóvember síðastliðnum þegar bláu tunnurnar urðu fyrir bæði plast og pappír. Þá var dögum sem bláa tunnan er tæmd fjölgað um helming. 

Magn af sorpi í bláu tunnunum í Kópavogi jókst um 25% á tímabilinu nóvember til febrúar miðað við sömu mánuði í fyrra og um 42% miðað við mánuðina á undan, júlí til október. Alls fóru 640 tonn af plasti og pappír í bláu tunnuna hjá Kópavogsbúum frá nóvember til mars.

Endurvinnsla á sorpi bæjarbúar hefur þannig stóraukist, plastið er eins og pappírinn flutt utan til endurvinnslu og þannig tryggt að það endar ekki í urðun þar sem það getur legið í hundrað ár án þess að brotna niður.

Það sem má fara í bláu tunnurnar í Kópavogi er: Sléttur pappi og karton, til dæmis utan af skyndiréttum og kexi, bylgjupappi til dæmis pappakassar, dagblöð, fernur, eggjabakkar, skrifstofupappír, mjúkt plast, til dæmis plastfilma og hart plast til dæmis hreinsiefnabrúsar og skyrdósir.

Allir flokkarnir mega fara beint í tunnuna, þeir eru síðan flokkaðir í sundur þegar komið er með þá á flokkunarstöð. Plastið og pappírinn eru flutt utan til endurvinnslu.

Nánari upplýsingar