Bæjarstjórn í Gerðarsafni

Frá fundi bæjarstjórnar 28.feb´17
Frá fundi bæjarstjórnar 28.feb´17

Fundur bæjarstjórnar þriðjudaginn 14.mars fer fram í Gerðarsafni, neðri hæð. Fundurinn hefst klukkan 16 og er venju samkvæmt öllum opinn. Gengið er inn sunnanmegin í safnið til að fylgjast með fundinum. Þetta er annar fundurinn sem haldinn er í Gerðarsafni, en bæjarstjórn Kópavogs flutti úr fundarsal Fannborg 2 eftir að flytja þurfti nemendur Kársnesskóla í Fannborg vegna viðgerða á Kársnesskóla.

Bæjarstjórn Kópavogs fundar annan og fjórða þriðjudag hvers mánaðar. 

Fundarsalur bæjarstjórnar í Gerðasafni