Bæjarstjórn staðfestir byggingaráform á Fannborgarreit og Traðarreit

Fyrirhuguð uppbygging á Fannborgarreit. Mynd/Nordic Office of Architecture.
Fyrirhuguð uppbygging á Fannborgarreit. Mynd/Nordic Office of Architecture.

Bæjarstjórn Kópavogs hefur staðfest að byggingaráform á Fannborgarreit og Traðareit séu í samræmi við deiliskipulag miðbæjar Kópavogs. Uppbygging á reitunum markar fyrstu áfangana í uppbyggingu á svæðinu og er liður í að skapa lifandi og fjölbreyttan miðbæ fyrir íbúa, gesti og atvinnulíf í miðbæ Kópavogs. Undirbúningur hefur staðið yfir frá árinu 2017.

Hvar erum við stödd í ferlinu?

Skipulagið hefur tekið ýmsum breytingum frá upphaflegum áformum en staðfesting byggingaráforma markar lok skipulagsferlis verkefnisins og upphaf undirbúnings framkvæmdanna. Enn eru þó nokkur skref eftir í ferlinu þar til þær hefjast.

Hér að neðan er tímalína til að glöggva sig betur á ferlinu.

Tímalína

Undirbúningur og skipulag (2017–2021)

2017: Sala fasteigna í Fannborgarreit samþykkt á bæjarstjórnarfundi
2018: Kópavogsbær gengur frá kaupsamningi við framkvæmdaraðila
2019–2021: Heildstæð skipulagsvinna:

  • Deiliskipulagslýsing og breytingar á aðalskipulagi unnar og kynntar fyrir íbúum
  • Skipulagsdrög voru kynnt tvisvar á vinnslustigi og tillögur aðlagaðar til að koma til móts við sjónarmið sem fram komu í íbúasamráði .
  • Fullunnar skipulagstillögur kynntar íbúum og hagsmunaaðilum í byrjun árs 2021 og samþykktar með breytingum í skipulagsráði og bæjarstjórn í maí 2021.
  • Skipulagið tók gildi í desember 2021.

Staðfest byggingaráform (vor 2025)

Mars 2025:Drög að byggingaráformum lögð fram til kynningar í skipulags- og umhverfisráði.

Maí 2025: Drögin lögð fram að nýju í skipulags- og umhverfisráði, og vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Maí 2025:Bæjarstjórn staðfestir að áformin séu í samræmi við gildandi deiliskipulag.

Hvað tekur við?

  • Fullnaðarhönnun bygginga
  • Umsókn um niðurrifsleyfi, þar með talið starfsleyfi frá Heilbrigðiseftirliti
  • Umsókn um byggingarleyfi til byggingarfulltrúa. Samráð við m.a. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins og Heilbrigðiseftirlitið.
  • Framkvæmdir geta hafist þegar öll tilskilin leyfi liggja fyrir.

Ekki er hægt að tímasetja nákvæmlega hvenær framkvæmdir hefjast eftir að tilskilin leyfi hafa fengist. Þeir áfangar sem lýst er hér að ofan taka tíma og byggjast á afgreiðslu á umsóknum að uppfylltum ítarlegum kröfum.

Upplýsingagjöf og samtal við íbúa

Unnið er að framkvæmdaáætlun fyrir svæðið og áætlun um upplýsingagjöf og samráð meðan á undirbúningstíma framkvæmdanna stendur. Lögð verður sérstök áhersla á að lágmarka rask á framkvæmdatíma eins og hægt er en bæði Kópavogsbær og framkvæmdaaðilar munu miðla upplýsingum á skýran og aðgengilegan hátt fyrir íbúa.

Stefnt er að opnum íbúafundi í júní þar sem gögn sem liggja til grundvallar samþykktum byggingaráformum verða kynnt áhugasömum. Fundurinn verður nánar auglýstur síðar.

Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri: „Uppbyggingin í Fannborg og á Traðareit er mikilvægur þáttur í að styrkja hlutverk miðbæjar okkar Kópavogsbúa. Skipulagið hefur tekið þónokkrum breytingum í ferlinu, meðal annars í samræmi við hugmyndir íbúa en við sjáum þetta sem eitt skref í endurnýjun svæðisins.

Næst er að vinna áfram að því að þróa mannlífsmiðju sem þjónar öllum íbúum bæjarins, ekki bara þeim sem búa í eða nálægt miðbænum. Það hefur átt sér stað mikil uppbygging í miðbæ og vesturbæ Kópavogs og hún mun halda áfram. Miðbærinn er hjartað í bænum okkar, hér þurfum við að huga að mannlífi, að hér sé gott að búa og vera, að samgöngur virki og að bæjarhlutarnir tengist og vinni vel saman. Við þurfum líka að læra af reynslunni, bæði okkar eigin og annarra. Ég sé fyrir mér að hér séum við að stíga stórt skref í byggja upp nýtt hjarta Kópavogs sem við öll getum notið og verið stolt af.“