Börnum auðveldað að tilkynna til barnaverndar

Tákn sem birtast mun í spjaldtölvum nemenda í Kópavogi.
Tákn sem birtast mun í spjaldtölvum nemenda í Kópavogi.

Skólabörn í 5. til 10. bekk í Kópavogi geta frá og með 11. september haft samband við Barnavernd Kópavogs með því að smella á hnapp í spjaldtölvunni sinni. Öll börn í Kópavogi á þessum aldri fá spjaldtölvu til afnota og með því að setja hnappinn í tölvuna er börnum auðveldað að koma ábendingum sínum á framfæri.

Hnappurinn opnar aðgang að síðu þar sem börn geta lýst líðan sinni, áhyggjum eða aðstæðum og óskað eftir aðstoð frá barnavernd fyrir sig sjálf eða önnur börn.

Í tengslum við innleiðingu tilkynningahnappsins hafa verið búin til tvö myndbönd; annað fyrir foreldra og hitt fyrir börn. Foreldrar skólabarna fá sent upplýsingabréf frá skólayfirvöldum 4.september þar sem tilkynningarhnappurinn er kynntur. Í því er einnig vísað á myndband sem segir frá tilkynningarhnappnum.

Smelltu hér til að skoða kynningarmyndband

Skólabörn fá svo fræðslu dagana 10. - 11.september um tilkynningarhnappinn, tilgang hans og hlutverk barnaverndar.

Tilkynningarhnappurinn er hluti af innleiðingarferli Barnasáttmála SÞ í Kópavogi og byggir ekki síst á 12.greininni sem fjallar um tækifæri barna til að tjá sig.  Þá er hann samþættur kynningarátaki um mikilvægi barnaverndar sem hleypt var af stokkunum síðastliðið vor og er ætlað að minna fólk á að hafa vakandi auga með velferð barna.

Meira um Barnavernd Kópavogs