Breiðablik tekur við stúkunni

Kristján Jónatansson framkvæmdastjóri Breiðabliks, Orri Hlöðversson formaður Breiðabliks, Ármann Kr…
Kristján Jónatansson framkvæmdastjóri Breiðabliks, Orri Hlöðversson formaður Breiðabliks, Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóri Kópavosbæjar og Una María Óskarsdóttir formaður íþróttaráðs bæjarins við afhendingu stúkunna við Kópavogsvöll.

Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóri Kópavogsbæjar afhenti Orra Hlöðverssyni formanni Breiðabliks lyklavöld að stúkunni við Kópavogsvöll í dag. Félagið hefur þá formlega tekið við rekstri stúkunnar.

Þá hefur Breiðablik tekið við rekstri Smárans, Fífunnar og stúkunnar eins og gerður var samningur um í febrúarbyrjun á þessu ári.

Samkvæmt samningi Kópavogsbæjar og Breiðabliks ber íþróttafélagið ábyrgð á rekstri mannvirkjanna en ber að halda sig innan fjárhagsáætlunar Kópavogsbæjar. Rekstur og umhirða grasæfingasvæða Breiðabliks og Kópavogsvallar verður áfram á forræði Kópavogsbæjar