Breyting á svæðisskipulagi Höfuðborgarsvæðisins

Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu kynna breytingu á svæðisskipulagi.
Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu kynna breytingu á svæðisskipulagi.

Samgöngu- og þróunarásar fyrir hágæðakerfi almenningssamgangna á höfuðborgarsvæðinu - Borgarlína

Svæðisskipulagsnefnd höfuðborgarsvæðisins auglýsir tillögu að breytingu á svæðisskipulaginu Höfuðborgarsvæðið 2040, sbr. . 24. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 7. gr. laga um umhverfismat áætlana nr. 105/2006.

Breytingartillagan er tilkomin vegna undirbúnings Borgarlínu – hágæða almenningssamgöngukerfis sem tengja á öll sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu. Með breytingunni eru markaðir samgöngu- og þróunarásar en Borgarlína mun liggja innan þeirra. Einnig eru sett fram leiðbeinandi sem lúta að uppbyggingu innan samgöngu- og þróunarása.

Breytingartillagan, ásamt umhverfisskýrslu, ábendingum Skipulagsstofnunar og þeim athugasemdum sem bárust við tillögudrögin, liggur nú frammi til sýnis á skrifstofu SSH, Hamraborg 9 Kópavogi, hjá Skipulagstofnun, Borgartúni 7b í Reykjavík og á skrifstofum allra sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu til og með fimmtudagsins 18. janúar 2018.

Gögnin eru aðgengileg hér.

Þeir sem vilja kynna sér tillöguna frekar er hvattir til að mæta á opið hús á skrifstofu SSH, Hamraborg 9, Kópavogi á eftirtöldum dögum:

miðvikudaginn 13. desember kl. 11:30 – 13:30 og 15:30 – 17:30
fimmtudaginn 11. janúar kl. 11:30 – 13:30 og 15:30 – 17:30

Hver sá sem telur sig eiga hagsmuna að gæta er hvattur til að kynna sér tillögurna.

Ábendingum og athugasemdum við tillögurna skal skila skriflega til skrifstofu SSH Hamraborg 9, 200 Kópavogi eða á netfangið ssh@ssh.is eigi síðar en kl. 16:00  miðvikudaginn 17. janúar 2018.

Svæðisskipulagsstjóri höfuðborgarsvæðisins