Bryndísarbekkir settir upp í Kópavogi

Á myndinni eru frá vinstri: Steinar Guðmundsson, Friðrik Baldursson, Ásdís Kristjánsdóttir, Iðunn E…
Á myndinni eru frá vinstri: Steinar Guðmundsson, Friðrik Baldursson, Ásdís Kristjánsdóttir, Iðunn Eiríksdóttr, Vigdís Birgisdóttir og Birgir Karl Óskarsson.

Bekkur við Salalaug sem settur er upp til minningar um Bryndísi Klöru Birgisdóttur hefur verið tekinn í notkun. Foreldrar Bryndísar, Birgir Karl Óskarsson og Iðunn Eiríksdóttir, afhjúpuðu bekkinn ásamt Vigdísi, systur Bryndísar Klöru. Bryndís Klara lést af sárum sínum í ágúst síðastliðnum eftir að hafa orðið fyrir árás á Menningarnótt.

Hugmyndin um að koma Bryndísarbekkjum fyrir um allan Kópavog er komin frá Steinari Guðmundssyni sem setti hana fram í hugmyndasöfnun verkefnisins Okkar Kópavogur. Þar hlaut hún brautargengi og mikinn stuðning Kópavogsbúa. Steinar var viðstaddur þegar bekkurinn var afhjúpaður ásamt Ásdísi Kristjánsdóttur bæjarstjóra Kópavogs og Friðriki Baldurssyni garðyrkjustjóra sem hefur séð um verkefnið fyrir hönd bæjarins.

„Okkur þykir mjög vænt um að Bryndísar Klöru sé minnst í sínum heimabæ með þessum fallega hætti. Við vonumst til þess að bekkirnir minni fólk á mikilvægi þess að samfélag þar sem samkennd og samvinna eru í forgrunni er það samfélag sem þarf að efla og styðja,“ sögðu foreldrar Bryndísar við tækifærið.

Bekkirnir eru bleikir og á þeim er skilti sem á stendur: Bryndísarbekkur. Látum kærleikann sigra, Bryndís Klara Birgisdóttir, 2007-2024. Í sumar verður sams konar bekkjum og er að finna við Salalaug komið fyrir við alla grunnskóla bæjarins og íþróttahús, og eru staðirnir valdir með það í huga að vera sýnilegur þar sem börn og ungmenni eru á ferðinni. Þess má geta að áður hafði verið settur upp bekkur við Salaskóla, grunnskóla Bryndísar, að frumkvæði foreldranna í samvinnu við Kópavogsbæ.

Á skiltinu sem er á bekkjunum er merki minningarsjóðs Bryndísar Klöru sem settur var á laggirnar á síðasta ári. Sjóðurinn mun leggja áherslu á að veita styrki til fræðslu, rannsókna og verkefna til að koma í veg fyrir að hörmulegir atburðir á borð við andlát Bryndísar Klöru endurtaki sig. Nánari upplýsingar um sjóðinn og hvernig leggja má honum lið er að finna á vef sjóðsins mbk.is.