Alzheimersamtökin í Geðræktarhúsið

Á myndinni eru frá vinstri Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri, Ragnheiður Ríkharðsdóttir formaður st…
Á myndinni eru frá vinstri Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri, Ragnheiður Ríkharðsdóttir formaður stjórnar Alzheimersamtakanna og Guðlaugur Eyjólfsson framkvæmdastjóri.

Alzheimersamtökin munu leigja Geðræktarhúsið í Kópavogi og nýta undir heilsutengda starfsemi fyrir fólk sem greinst hefur með heilabilun.

Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri Kópavogs og Guðlaugur Eyjólfsson framkvæmdastjóri Alzheimersamtakanna hafa skrifað undir leigusamning um leigu á 1.hæð og kjallara hússins og er stefnt að því að starfsemi hefjist í húsinu í nóvember næstkomandi.

Geðræktarhúsið stendur við Kópavogsgerði 8. Það var reist fyrir tilstuðlan Hringskvenna sem ráku hressingarhæli í húsinu. Húsið var tekið í notkun fyrir 100 árum, árið 1926 og er eina húsið í Kópavogi sem teiknað var af Guðjóni Samúelssyni.

„Það er einstakt ánægjuefni að bjóða Alzheimarsamtökin velkomin í Geðræktarhúsið með þjónustuúrræði fyrir fólk með heilabilun. Þetta er mikilvæg starfsemi sem ég er stolt af að fái samastað í þessu fallega og sögulega húsi,“ sagði Ásdís Kristjánsdóttir við tækifærið.

"Við hlökkum mikið til að opna nýtt þjónustuúrræði fyrir fólk á fyrstu stigum heilabilunar í þessu glæsilega húsnæði. Starfsemin verður sambærileg Seiglunni sem við rekum í Lífsgæðasetrinu í Hafnarfirði, sem áður hýsti St. Jósefsspítala, það er viðeigandi þar sem Guðjón Samúelsson teiknaði bæði húsin og voru þau bæði tekin í notkun árið 1926,“ sagði Guðlaugur Eyjólfsson.

AlzheimersamtökiniGeðræktarhús