Ársreikningur ársins 2024 staðfestur

Vatnsendahverfi í Kópavogi.
Vatnsendahverfi í Kópavogi.

Bæjarstjórn Kópavogs staðfesti ársreikning ársins 2024 á fundi sínum 13.maí að lokinni síðari umræðu um ársreikninginn. 

Ársreikningurinn var lagður fram í bæjarráði Kópavogs fimmtudaginn 10.apríl og vísað til fyrri umræðu í bæjarstjórn Kópavogs sem fram fór 29.apríl .

Fram kemur í ársreikningnum að rekstur Kópavogsbæjar styrktist verulega árið 2024 og er afkoman sú besta í fjölda ára.

„Sterk staða Kópavogsbæjar birtist í ársreikningi ársins 2024. Rekstur Kópavogsbæjar styrkist umtalsvert milli ára sem endurspeglar ríka áherslu okkar á traustan rekstur. Þrátt fyrir miklar fjárfestingar í leik- og grunnskólum og öðrum nauðsynlegum innviðum sveitarfélagsins eru heildarskuldir og skuldbindingar að lækka að raunvirði. Þá heldur skuldahlutfall Kópavogsbæjar áfram að lækka og er langt undir lögbundnu skuldaviðmiði. Ábyrg fjármálastjórn er forsenda þess að unnt sé að veita framúrskarandi þjónustu til bæjarbúa. Verkefnið nú sem endranær er að standa vörð um góðan rekstur þannig að áfram sé unnt að skila ábatanum til bæjarbúa í formi lægri skatta og bættrar þjónustu,“ segir Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri Kópavogs.

Rekstrarniðurstaða A-hluta var jákvæð um 6,5 milljarða króna fyrir fjármagnsliði og rekstrarafgangur 4,2 milljarðar króna en áætlun gerði ráð fyrir að afkoman yrði neikvæð um 146 milljónir króna. Rekstrarniðurstaða A- og B-hluta fyrir fjármagnsliði er jákvæð um 7,4 milljarða og rekstrarafgangur samstæðunnar 4,5 milljarðar króna.

Heildarskuldir og skuldbindingar lækka að raunvirði. Þá lækkar skuldaviðmið í 77 % úr 92% og er vel undir lögbundnu hámarki sem er 150% samkvæmt sveitarstjórnarlögum

Kynning bæjarstjóra

Ítarlegri frétt um ársreikninginn

Ársreikningur 2024