Daltún 1 er Jólahús Kópavogsbæjar 2023

Elísabet Sveinsdóttir forseti bæjarstjórnar og formaður lista- og menningarráðs og Hjörtur Eiríksso…
Elísabet Sveinsdóttir forseti bæjarstjórnar og formaður lista- og menningarráðs og Hjörtur Eiríksson eigandi jólahúss Kópavogs 2023.

Lista- og menningarráð Kópavogs stóð í ár í annað sinn fyrir leitinni að Jólahúsi Kópavogs og að þessu sinni varð Daltún 1 fyrir valinu. Að þessu sinni voru einnig valdar Jólagata og Fjölbýlishús ársins.

Þetta er svo skemmtilegt, það er svo dýrmætt að sjá alla þessa ljósadýrð á þessum myrkasta tíma ársins, segir Elísabet Sveinsdóttir forseti Lista- og menningarráðs Kópavogs. Þetta er annað árið sem við förum af stað með þessa nafnbót, mikilvægt að lyfta upp því sem vel er gert og svo nærir þetta jólaandann.

Dómnefnd dæmdi út frá; samhengi við umhverfið, birtu og jólafíling/stemmingu.

Þetta er svo skemmtilegt, það er svo dýrmætt að sjá alla þessa ljósadýrð á þessum myrkasta tíma ársins, segir Elísabet Sveinsdóttir forseti Lista- og menningarráði Kópavogs. Þetta er annað árið sem við förum af stað með þessa nafnbót, mikilvægt að lyfta upp því sem vel er gert og svo nærir þetta jólaandan.

Dómnefnd dæmdi út frá; samhengi við umhverfið, birtu og jólafíling/stemmingu.

Dómarar voru sammála um að það er einstaklega gaman að keyra um bæinn og sjá fallegar skreytingar og gaman að sjá hvernig þetta þróast ár frá ári.

Jólahús Kópavogs 2023

Daltún 1

Umsögn dómnefndar:

Falleg kyrrð í ljósdýrðinni, umhverfið hjálpar vissulega til með þessum fallegu trjám sem umliggja húsið. Einföld litasamsetningin sveipar ákveðnum töfrablæ yfir húsið allt um kring.

Daltún 1

Jólagata Kópavogs 2023

Múlalindin

Umsögn dómnefndar

Það er nú ekki annað hægt en að komast í jólaskap þegar keyrt/gengið er inn í Múlalindina. Fyrstu tvö húsin er einstaklega vel og mikið skreytt, þau setja tóninn fyrir alla götuna sem sú jólalegasta í Kópavogi þetta árið.

Jólagata MúlandiJólahúsJólahús

Jólafjölbýlishús Kópavogs 2023

Sunnusmári 22 - 28

Umsögn dómnefndar:

Mjög fallegt að sjá hversu samtaka nágrannarnir í Sunnusmáranum eru, það hafa allir sett eins seríu og verður heildarútkoman því einstaklega falleg. Birtan/bjarminn frá húsinu sést langar leiðir og verður fallegri því nær maður kemur að húsinu.

Jólafjölbýlishús Sunnusmári 22-28