Gestir á íbúafundi um Stelluróló.
Vel var mætt á kynningarfund um Holtsvöll sem betur er þekktur sem Stelluróló. Fundurinn var haldinn í Barnaskóla Kársness fimmtudaginn 16.apríl.
Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri ávarpaði gesti og Friðrik Baldursson garðyrkjustjóri flutti erindi um sögu Stelluróló sem kenndur er við Stellu, Guðbjörgu Arnórsdóttur, en hún starfaði á þar frá árinu 1969 til ársins 2000.
Til stendur að endurgera Stelluróló og svæðið í kring. Aðalheiður E. Kristjánsdóttir landslagsarkitekt hjá Landmótun kynnti tillögur að nýrri nálgun á nýtingu svæðisins sem er á skjólgóðum stað milli Borgarholtsbrautar og Hlégerðis.
Að loknum kynningum voru fjörugar umræður um svæðið og fyrirhugaða endurgerð. Mikil ánægja var á meðal gesta á fundinum að til standi að taka svæðið í gegn og komu fjölmargar góðar ábendingar fram.
Kópavogsbær stendur einnig fyrir rafrænni hugmyndasöfnun og eru áhugasöm hvött til þess að taka þátt og koma sínum hugmyndum á framfæri.
Nánar um endurgerðina

