Mál og læsi á Skólaþingi

Skólaþingið
Skólaþingið

Þetta er í fyrsta sinn sem haldið er sameiginlegt þing fyrir leik- og grunnskóla í Kópavogi  og Skólaþingið í ár því það lang fjölmennasta sem haldið hefur verið. Skólaþingið fór fram 7. október.

Að þessu sinni var valið að leggja áherslu á mál og læsi enda Kópavogur aðili að þjóðarsáttmála um læsi. Í tengslum við þjóðarsáttmálann var gerð ný stefna Kópavogs um mál og lestur í leik- og grunnskólum.

„Skólaþingið tókst afar vel til, það er gott og gefandi að stefna saman leik- og grunnskólum. Þó að viðfangsefnin séu ekki  alltaf þau sömu þá fást öll skólastigin við málþroska, lestur og lesskilning,“ segir Anna Birna Snæbjörnsdóttir sviðstjóri menntasviðs Kópavogs en menntasviðið skipulagði Skólaþingið.