Bæjarstjórn Runavíkur í heimsókn

Bæjarstjórn Runavíkur í heimsókn í Kópavogi.
Bæjarstjórn Runavíkur í heimsókn í Kópavogi.

Bæjarstjórn Runavíkur í Færeyjum sótti Kópavog heim mánudaginn 3. desember.

Þau óskuðu sérstaklega eftir því að fá að skoða Menningarhúsin í Kópavogi og fræðast um barnamenningarstarfið sérstaklega. Þá vöktu íþróttahúsin einnig áhuga og fór hópurinn í Kórinn og Versali.

Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóri Kópavogs tók á móti hópnum og sagði frá Kópavogi, þá ræddi Soffía Karlsdóttir forstöðumaður menningarmála um menningarstarfsemi bæjarins. Hópurinn skoðaði Gerðarsafn, Bókasafn Kópavogs, Náttúrufræðistofu Kópavogs og Salinn. Þá var haldið í íþróttahúsið Kórinn og Versali undir leiðsögn Jóns Júlíussonar deildarstjóra íþróttadeildar og Gunnars Guðmundssonar íþróttafulltrúa.