Bókasafn Kópavogs er vettvangur fjölbreyttra viðburða.
Nýtt almenningsbókasafn mun rísa í Kórnum í Kópavogi og er stefnt að því að opna það árið 2029. Útibúið í Kórnum verður þannig þriðja bókasafnið í Kópavogi og bætist við Bókasafn Kópavogs í Hamraborg og menningarmiðstöð í Smáralind sem opnar árið 2027. Skólabókasafn Lindaskóla heldur áfram starfsemi sinni á meðan almenningshlutinn færist yfir við opnun í Smáralind.
„Íbúar í efri byggðum hafa lengi kallað eftir almenningsbókasafni í nærumhverfi sínu og við erum að svara því ákalli með bókasafni í Kórnum. Staðsetningin er frábær því mikill fjöldi íbúa sækir Kórinn daglega; börn, ungmenni, foreldrar og eldri íbúar. Þá munu leik- og grunnskólar í nágrenni njóta góðs af almenningsbókasafni og þjónustukjarni eldri íbúa í Boðaþingi er innan seilingar. Það er vel við hæfi að innsigla þessi áform um fleiri menningarmiðstöðvar á sama tíma og við hefjum lestrarátakið Bókavog – þar sem fjölskyldur lesa saman. Markmiðið með Bókavogi er að efla lestraráhuga, styrkja læsi í víðum skilningi og skapa jákvæða upplifun í kringum bækur og lestur fyrir börn, ungmenni og fjölskyldur í öllum hverfum bæjarins og með þátttöku allra helstu stofnana, til dæmis leik- og grunnskóla, félagsmiðstöðva, bókasafna og sundlauga,” segir Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri Kópavogs.
Bókasafnið í Kórnum mun einnig nýtast Kóraskóla og verður innangengt í það úr skólanum en sérinngangur inn í það fyrir almenning. Stefnt er að því að bjóða upp á menningarviðburði af fjölbreyttum toga í menningarkjarnanum eftir því sem húsrúm leyfir en einnig er horft til þess að í Kórnum er að finna opin rými sem gætu hentað vel til menningarviðburða.
„Bókasöfn eru griðastaður í samtímanum og við finnum að fólki þykir mikilvægt að hafa bókasöfn í sínu nærumhverfi. Það er því fagnaðarefni að útibúum Bókasafns Kópavogs fjölgi og þrjú bókasöfn verði í Kópavogi. Bókasafn í Kórnum mun þjóna íbúum í efri byggðum enda miðsvæðis og á örugglega eftir að styrkja stöðu Kórsins enn frekar sem kjarnans í hverfinu,“ segir Lísa Z. Valdimarsdóttir forstöðumaður Bókasafns Kópavogs.
Kórinn hefur hýst margvíslega starfsemi síðan hann var tekinn í notkun. Í dag er Kóraskóli þar með sína starfsemi, HK með æfingaaðstöðu og skrifstofur og félagsmiðstöð Kóraskóla. Hann er þannig mikið nýttur af íbúum í ýmsum erindagjörðum. Bókasafnið mun renna frekari stoðum undir margvíslega notkun Kórsins fyrir íbúa Kópavogsbæjar. Áætlað er að framkvæmdir við nýtt safn í Kórnum hefjist árið 2027 en ljúki árið 2029.