Við Kópavogstjörn í Kópavogsdal.
Ársreikningur Kópavogsbæjar fyrir árið 2025 var lagður fram í bæjarráði í morgun. Rekstur Kópavogsbæjar hélt áfram að styrkjast á árinu, afkoman var jákvæð og heildarskuldir lækkuðu að raunvirði.
Rekstrarniðurstaða A-hluta var jákvæð um 4,2 milljarða króna en áætlun gerði ráð fyrir að rekstrarafgangur yrði um 263 milljónir króna. Rekstrarniðurstaða A- og B-hluta var jákvæð um 4,6 milljarða en gert hafði verið ráð fyrir 366 milljóna jákvæðri niðurstöðu. Veltufé frá rekstri var 4,8 milljarðar króna á samstæðunni sem endurspeglar það svigrúm sem reksturinn gaf og stendur undir framkvæmdum og afborgunum lána.
Heildarskuldir og skuldbindingar lækka að raunvirði. Þá lækkar skuldaviðmið samstæðu í 72% úr 77% og er vel undir lögbundnu hámarki sem er 150% samkvæmt sveitarstjórnarlögum.
Lóðum í öðrum og þriðja áfanga í Vatnsendahvarfi var úthlutað árið 2025 sem skilar sér inn í ársreikninginn en samkvæmt venju er ekki gert ráð fyrir lóðaúthlutun í fjárhagsáætlun.
„Árin 2024 og 2025 eru tvö bestu rekstrarár Kópavogs í 18 ár. Sterk staða Kópavogsbæjar er afrakstur markvissrar forgangsröðunar og ábyrgra ákvarðana í rekstri sveitarfélagsins, þar sem afkoman er jákvæð um 4,6 milljarða króna og veltufé frá rekstri er sterkt og stendur undir framkvæmdum og afborgunum lána.
Heildarskuldir og skuldbindingar Kópavogsbæjar halda áfram að lækka að raunvirði þrátt fyrir miklar fjárfestingar í leik- og grunnskólum auk uppbyggingar annarra nauðsynlegra innviða í samfélaginu. Þá heldur skuldahlutfall Kópavogsbæjar áfram að lækka og er langt undir lögbundnu skuldaviðmiði.
Á sama tíma og verðbólga og háir vextir hafa þrengt að ráðstöfunartekjum heimila víða um land hefur Kópavogsbær lagt ríka áherslu á að verja hagsmuni íbúa og tryggja stöðugleika í fjármálum heimilanna. Fasteignagjöld hafa lækkað að raunvirði síðustu ár og eru þau lægstu á höfuðborgarsvæðinu. Þá tilkynnti Kópavogsbær nýverið að gjaldskrárhækkanir yrðu takmarkaðar við 2,5% á barnafjölskyldur til að standa vörð um ráðstöfunartekjur þeirra og stuðla að friði á vinnumarkaði.
Ábyrg fjármálastjórn er forsenda þess að unnt sé að veita góða þjónustu til bæjarbúa. Sem bæjarstjóri hef ég staðið vörð um traustan rekstur og lagt áherslu á að skila ábatanum til íbúa í formi lægri skatta og bættrar þjónustu,“ segir Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri Kópavogs.
Umfangsmiklar framkvæmdir í innviðum
Fjárfestingar og framkvæmdir í leik- og grunnskólum ásamt öðrum mannvirkjum námu um 7,7 milljörðum króna. Þrátt fyrir miklar fjárfestingar var ekki þörf á lántökum á árinu 2025, meðal annar vegna tekna af lóðaúthlutun, einkum í Vatnsendahvarfi.
Viðamesta framkvæmdin á árinu 2025 var bygging við Barnaskóla Kársness við Skólagerði en kostnaður við hana nam um 3 milljörðum árið 2025, skólinn tók til starfa haustið 2025. Til viðbótar við Barnaskóla Kársness var um 1,7 milljarði varið í endurbætur og framkvæmdir við leik- og grunnskóla, þar með taldar framkvæmdir við nýjan leikskóla við Skólatröð.
Aðrar umfangsmiklar fjárfestingar voru meðal annars bygging íbúðakjarna við Kleifakór þar sem kostnaður var um 282 milljónir króna. Auk þess voru framkvæmdir við Kópavogsvöll, Fífuna og Kórinn sem nema um 638 milljónum króna. Þá var 177 milljónum varið í nýtt hjúkrunarheimili í Boðaþingi. Um 1,6 milljarði var varið í í gatnagerð og er þar með talið veglagning í nýju hverfi, Vatnsendahvarfi.
Skuldaviðmið lækkar áfram
Skuldaviðmið A- og B-hluta lækkar frá fyrra ári og var 72% í árslok 2025. Skuldaviðmið A-hluta lækkar einnig og var 68% í lok árs.
Vaxtaberandi skuldir í ársreikningi fyrir 2025 voru rúmlega 36 milljarðar hjá samstæðu. Heildarskuldir og skuldbindingar samstæðu Kópavogsbæjar voru 58 milljarðar og lækkuðu að raunvirði milli ára.
Veltufé frá rekstri samstæðunnar, A- og B-hluta, var 4,8 milljarðar. Eigið fé samkvæmt samanteknum efnahagsreikningi A- og B-hluta í árslok 2025 nam 50 milljörðum króna en eigið fé A-hluta nam 26 milljörðum króna.
Laun og launatengd gjöld um helmingur af tekjum
Laun og launatengd gjöld A-og B-hluta á árinu, án framlags til lífeyrisskuldbindinga, námu alls 30 milljörðum króna sem er 5,7% hækkun frá fyrra ári en laun hækkuðu um 11% hjá sveitarfélögum á árinu 2025 frá fyrra ári miðað við launavísitölu Hagstofunnar. Gjaldfærsla lífeyrisskuldbindinga hækkaði verulega á árinu, eða úr 600 milljónum króna 2024 í 2,1 milljarð árið 2025. Launakostnaður vegur í dag um helming af rekstrartekjum samstæðunnar.
Fjöldi starfsmanna á launaskrá í árslok var 3.124 en meðalfjöldi stöðugilda á árinu var 2.083.
Íbúar Kópavogsbæjar þann 1. desember 2025 voru 41.630 samkvæmt Þjóðskrá Íslands og fjölgaði þeim um 279 frá fyrra ári eða um 0,67%.
Ársreikningurinn var lagður fram í bæjarráði Kópavogs fimmtudaginn 16. apríl og vísað til fyrri umræðu í bæjarstjórn Kópavogs þann 28. apríl næstkomandi.
Ársreikningur 2025 - lagður fram til fyrri umræðu í bæjarstjórn