Fjárhagsáætlun Kópavogsbæjar 2018

Fjárhagsáætlun Kópavogsbæjar fyrir 2018 var lögð fram til fyrri umræðu þriðjudaginn 14. nóvember.
Fjárhagsáætlun Kópavogsbæjar fyrir 2018 var lögð fram til fyrri umræðu þriðjudaginn 14. nóvember.

Fjárhagsáætlun Kópavogsbæjar fyrir árið 2018 hefur verið lögð fram til fyrri umræðu í bæjarstjórn Kópavogs.

Ríflegur rekstrarafgangur, niðurgreiðsla skulda, áhersla á mennta- og lýðheilsumál eru meðal þess sem fram kemur í fjárhagsáætluninni. Eins og undanfarin ár eru ekki tekin lán fyrir framkvæmdum bæjarins. Þriðja árið í röð er fjárhagsáætlun unnin í samstarfi allra flokka.

Rekstrarafgangur Kópavogsbæjar verður 824 milljónir 2018 samkvæmt áætluninni. Skuldahlutfall heldur áfram að lækka hratt og verður 127% í árslok samkvæmt áætluninni en það hefur lækkað úr 175% frá árinu 2014. Gert er ráð fyrir að lækkun skulda verði vel á þriðja milljarð.

 „Við erum komin á þann stað að við getum framkvæmt af krafti um leið og við eflum grunnþjónustuna, greiðum niður skuldir og lækkum skatta. Þetta hefur tekist með góðu aðhaldi og metnaði á kjörtímabilinu. Kópavogsbær hefur allt til að bera til að vera með einn hagkvæmasta rekstur allra sveitarfélaga landsins,“ segir Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóri Kópavogs.

Velferð, lýðheilsa, menntamál

Í áætluninni endurspeglast áhersla bæjarins á velferð íbúa. Nefna má að félagslegum íbúðum verður fjölgað og barnaverndin styrkt. Málefni aldraðra verða í forgangi, gjald fyrir heimsendan mat til aldraðra lækkar einnig um 20%, fer úr 1010 kr. í 810 kr. Þá lækkar álagningarhlutfall fasteignagjalda einnig, bæði á íbúðir og atvinnuhúsnæði.

Unnið verður að verkefnum sem tengjast lýðheilsu í bænum í samræmi við nýsamþykkta lýðheilsustefnu en ráðinn hefur verið lýðheilsufræðingur til þess að fylgja aðgerðaáætlun stefnunnar eftir.  

Í menntamálum má nefna að á næsta ári verða námsgögn án endurgjalds. Þá tengjast stærstu framkvæmdir sveitarfélagsins menntamálum. Á næsta ári hefst bygging húsnæðis fyrir Skólahljómasveit Kópavogs, framkvæmdum við íþrótta- og fimleikahús við Vatnsendaskóla lýkur og stefnt er að því að hefja framkvæmd við nýjan skóla á Kársnesi.

Skóla- og leikskólalóðir verða endurnýjaðar í samræmi við verkefnið skemmtilegri leikskóla- og skólalóðir.

Frístundastyrkur til barna, sem veittur er til tómstunda- og íþróttaiðkunar, hækkar í 50.000 krónur 2018 úr 40.000 krónum 2017.

Unnið verður að endurnýjun gervigrasvalla og þjónustuaðstaða sundlauganna endurnýjuð. Þá er 95 milljónum varið í göngu- og hjólreiðastíga sem er veruleg aukning frá 2017.

Á næstu tveimur árum verður 200 milljónum varið í íbúalýðræðisverkefnið Okkar Kópavogur. Verkefninu var fyrst hleypt af stokkunum 2016 og er það nú í gangi í annað sinn. Á næsta ári verður kosið og hafist handa við framkvæmdir en á árunum 2016-2017 voru 34 hugmyndir íbúa framkvæmdar sem sett hafa svip á bæjarfélagið.

Viðhaldsáætlun í vinnslu

Unnið hefur verið að ítarlegri viðhaldsáætlun fyrir allar byggingar bæjarins og verður hafist handa við að vinna samkvæmt henni á næsta ári. 100 milljónum verður varið til viðhaldsverkefna til viðbótar við það sem gert var í ár, og er alls þá 490 milljónum varið í ýmis viðhaldsverkefni.

Álagningarhlutfall vegna fasteignagjalda á íbúðarhúsnæði lækkar sjötta árið í röð. Fer úr 0,255 % í 0,23% á íbúðum. Þá lækkar álagningarhlutfall vegna atvinnuhúsnæðis úr 1,62% í 1,60 í atvinnuhúsnæði auk þess sem vatns- og holræsagjöld lækka umtalsvert.

Veltufé frá rekstri samstæðunnar eru 4 milljarður.

Þess má loks geta að óreglulegar tekjur á borð við sölu byggingarréttar eru ekki teknar inn í fjárhagsáætlun en undanfarin ár hafa þær verið notaðar til að greiða niður skuldir.

 

Fjárhagsáætlun 2018

Greinargerð með fjárhagsáætlun 2018

Þriggja ára áætlun 2019-2021