Fjárhagsáætlun 2019

Fjárhagsáætlun Kópavogs 2019 verður tekin til fyrri umræðu 13. nóvember.
Fjárhagsáætlun Kópavogs 2019 verður tekin til fyrri umræðu 13. nóvember.

Fjárhagsáætlun Kópavogsbæjar fyrir árið 2019 hefur verið lögð fram. Hún verður tekin til fyrri umræðu í bæjarstjórn Kópavogs þriðjudaginn 13.nóvember. Fjórða árið í röð er fjárhagsáætlunin unnin í samstarfi allra flokka í bæjarstjórn.

Fasteignaskattur á íbúðarhúsnæði lækkar sjöunda árið í röð, fer úr 0,23 % í 0,22%. Fasteignaskattur á atvinnuhúsnæði lækkar úr 1,60 í 1,50% auk þess sem vatns- og holræsagjöld lækka umtalsvert.

Rekstrarafgangur samstæðu Kópavogsbæjar verða rúmlega 607 milljónir árið 2019 samkvæmt áætluninni. Skuldahlutfall heldur áfram að lækka og verður 119% í árslok 2019 en það hefur lækkað úr 175% frá árinu 2014. Niðurgreiðsla skulda heldur áfram og lýkur greiðslum á lánum sem tekin voru í hruninu.

„Kópavogsbær neyddist til að endurfjármagna sig í hruninu með mjög ósanngjörnum lánum. Uppgreiðsla þeirra á næsta ári þýðir að greiðslubyrði léttist til muna. Fjárhagsstaða bæjarins styrkist því jafnt og þétt. Íbúar í Kópavogi hafa notið bættrar afkomu í gegnum aukna þjónustu og ýmsar framkvæmdir, stórar og smáar. Þessi fjárhagsáætlun undirstrikar sterka fjárhagsstöðu bæjarins,“ segir Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóri Kópavogs.

Fjárhagsáætlunin endurspeglar áherslu á mennta- og velferðarmál í Kópavogsbæ.

Þar má nefna að aukin áhersla verður á fyrirbyggjandi starfsemi og í því skyni lagt aukið fjármagn í fræðslu og námskeið fyrir börn á leik- og grunnskólaaldri ásamt fyrir foreldra þeirra og þá sérstaklega beint sjónum að snemmtækri íhlutun og þar með stuðningi, til dæmis vegna kvíða barna. Sálfræðiþjónusta verður aukin í skólum og heilsuefling starfsmanna efld.

Gert er ráð fyrir verulegri aukningu í málefni fatlaðra vegna notendastýrðrar aðstoðar, svo og vegna aukinnar þjónustu við fatlaða einstaklinga í sérhæfðum búsetuúrræðum. Jafnframt þessu er gert ráð fyrir fjármagni vegna væntanlegs samstarfs við Reykjavíkurborg  vegna húsnæðis fyrir fólk með fjölþættan vanda.

Þá verður áhersla á lýðheilsumál og ráðið í nýja stöðu verkefnastjóra íbúatengsla.

Alls verður fjárfest fyrir 3,7 milljarða í Kópavogi 2019.

Meðal verkefna sem ráðist verður í er bygging húsnæðis fyrir Skólahljómsveit Kópavogs sem reist verður við Álfhólsskóla og stefnt er á að ljúka í árslok. Þá verður hafist handa við byggingu sambyggðs grunn- og leikskóla við Skólagerði á Kársnesi, 150 milljónum er varið í þá byggingu á næsta ári en alls 2,1 milljörðum, á næstu fjórum árum. Áfram verður sinnt verkefninu skemmtilegri grunnskóla- og leikskólalóðir og 125 milljónum varið í viðhald á Kópavogsskóla. Þá er áhersla á áframhaldandi fjölgun félagslegra íbúða.

Í tengslum við þéttingarverkefni á Kársnesi og í Smáranum verður ráðist í umtalsverðar gatnaframkvæmdir, alls fyrir um 600 milljónir króna. Ráðist verður í endurbætur og viðhald í menningarhúsum Kópavogs. Loks má þess geta að lokið verður við endurnýjun Kópavogsvallar.

Veltufé frá rekstri samstæðunnar verður samkvæmt áætluninni 3,8 milljarðar króna.

Íbúar Kópavogs verður 37.500 í árslok 2019 samkvæmt áætluninni en um 36.800 í lok 2018. 

Fjárhagsáætlun 2019 fyrri umræða

Þriggja ára áætlun 2020-2022 fyrri umræða