Fjárhagsáætlun 2020 lögð fram

Fjárhagsáætlun Kópavogsbæjar fyrir árið 2020 hefur verið lögð fram.
Fjárhagsáætlun Kópavogsbæjar fyrir árið 2020 hefur verið lögð fram.

Fjárhagsáætlun Kópavogsbæjar fyrir árið 2020 hefur verið lögð fram. Hún verður tekin til fyrri umræðu í bæjarstjórn Kópavogs í dag, þriðjudaginn 12.nóvember. Fimmta árið í röð er fjárhagsáætlunin unnin í samstarfi allra flokka í bæjarstjórn.

Fasteignaskattur á íbúðarhúsnæði lækkar áttunda árið í röð, fer í 0,215%. Fasteignaskattur á atvinnuhúsnæði fer í 1,49% auk þess sem holræsagjöld lækka umtalsvert.

Rekstrarafgangur samstæðu Kópavogsbæjar verða rúmlega 530 milljónir árið 2020 samkvæmt áætluninni. Skuldaviðmið heldur áfram að lækka og verður 104,1% í árslok 2020.

„Fjárhagsstaða Kópavogsbæjar er sterk. Greiðslubyrði lána Kópavogsbæjar hefur lést vegna hagstæðari kjara og uppgreiðslu lána og ekki er fyrirhugað að taka ný lán á næsta ári. Íbúar Kópavogs njóta góðs af góðri stöðu með með margvíslegum hætti, í góðri þjónustu og stórum og smáum framkvæmdum,“ segir Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóri Kópavogs.

Áhersla á mennta- og velferðarmál endurspeglast í fjárhagsáætlun Kópavogsbæjar. Meðal verkefna má geta að aukin áhersla er á fræðslu og forvarnir gegn vímuefnum í grunnskólum. Þá er aukið framlag til íslenskukennslu barna af erlendum uppruna og til persónulegra ráðgjafa fyrir börn innflytjenda.

Áfram verður áhersla á að fjölga félagslegum íbúðum. Þá er þjónusta við aldraða styrkt.

Lýðheilsumál eru efld enn frekar meðal annars með heilsueflingu eldri borgara og bættri líðan barna.

Alls verður fjárfest fyrir 3,1 milljarða í Kópavogi 2020.

Nýr Kársnesskóli við Skólagerði sem hýsa mun grunn- og leikskóla verður reistur á næstu árum.  Alls verður 3,2 milljörðum varið til skólabyggingarinnar þar af 300 milljónum á næsta ári. Þá fara 110 milljónir í að ljúka byggingu húsnæðis fyrir Skólahljómsveit Kópavogs.

160 milljónum verður varið til endurbóta á Kórnum svo hægt verði að nýta húsnæðið betur bæði í tengslum við skólastarf og fyrir menningarmiðstöð fyrir íbúa í efri byggðum.

Lokið verður við endurbætur á gamla Hressingarhælinu í Kópavogi með það að markmiði að nýta til geðræktarmála.  

1,5 milljarði verður varið til gatnaframkvæmda og tengdra verkefna, þar af 220 milljónum til umferðaröryggismála og göngu- og hjólreiðastíga. 400 milljónum verður varið í gatnaframkvæmdir á Kársnesi í tengslum við þéttingu byggðar þar.

Veltufé frá rekstri samstæðunnar verður samkvæmt áætluninni 3,7 milljarðar króna.

Íbúar Kópavogs verða 38.620 í árslok 2020 samkvæmt áætluninni en um 37.825 í lok 2019.

Fjárhagsáætlun 2020 fyrri umræða

Áætlun 2021-2023