Fjöldi unglinga í Vinnuskóla Kópavogs

Sumarboðinn ljúfi, Vinnuskóli Kópavogs.
Sumarboðinn ljúfi, Vinnuskóli Kópavogs.

Tæp 1.500 unglingar eru í Vinnuskóla Kópavogs í sumar. Það er svipaður fjöldi og í fyrra en mikil aukning frá árinu 2019 þegar 930 unglingar voru í Vinnuskólanum. 

Fyrsti dagur unglinga sem fædd eru 2004 var mánudagurinn 31.maí en þann 14.júní slást grunnskólanemendur í hópinn. 

Vinnuskólinn er fyrir 14 til 17 ára unglinga og fer vinnutími og kaup eftir aldri. 

Lögð áhersla á að veita nemendum jákvæða innsýn í atvinnulífið. Vinna í skólanum er í senn uppeldi, afþreying og tekjusköpun fyrir unglingana. Þeim er kennt að umgangast verkefni sín, notkun verkfæra og að bera virðingu fyrir samstarfsfólki sínu. Auk verkefna við umhirðu á bæjarlandi og fleiri starfa er boðið upp á ýmis konar námskeið fyrir nemendur á tímabilinu.

Meira um Vinnuskóla Kópavogs.