Fræðsla um upphaf leikskólagöngu

Leikskólabörn í Kópavogi.
Leikskólabörn í Kópavogi.

Foreldrum barna í Kópavogi sem eru að hefja leikskólagöngu í haust er boðið til fræðslu um líf og nám ungra barna í leikskóla. Fundirnir fara fram í Bókasafni Kópavogs. 

Í vor og haust munu mörg lítil börn, fædd 2015 og fyrri part árs 2016 hefja leikskólagöngu sína í leikskólum Kópavogs.  Undanfarið hafa litið dagsins ljós rannsóknir og skrif um líf og þroska yngstu þegnanna sem sýna með óyggjandi hætti að fyrstu árin skipta verulegu máli fyrir velferð þeirra.

Menntasvið Kópavogsbæjar og leikskólar bæjarins hafa tekið höndum saman til þess að þetta mikilvæga tímabil í lífi barna og foreldra þeirra takist sem best. Ákveðið hefur verið að bjóða foreldrum til fundar  til þess að fjalla um byrjun leikskólagöngu og líf og nám ungra  barna í leikskóla.  Foreldrar eru hvattir til að mæta.

Staður og stund

24. apríl, kl. 8:30 – 9:30 :  Leikskólarnir: Grænatún, Álfaheiði, Núpur, Efstihjalli, Fagrabrekka, Kópahvoll, Fífusalir

 

9. maí, kl. 8:30 – 9:30. Leikskólarnir: Arnarsmári, Álfatún, Dalur,Baugur, Rjúpnahæð.

16. maí, kl. 8:30 – 9:30. Leikskólarnir: Aðalþing, Sólhvörf, Kór, Austurkór.

18. maí kl. 8:30 – 9:30. Leikskólarnir: Kópasteinn, Marbakki, Urðarhóll, Lækur, Furugrund. 

Fundirnir fara fram í Bókasafni Kópavogs, fyrstu hæð.

Nánari upplýsingar um leikskóla í Kópavogi.