Fræðsluganga í trjásafninu

Mánudaginn 15. september býður Kópavogsbær og Sögufélag Kópavogs bæjarbúum og öðrum gestum upp á fræðslugöngu um trjásafn Kópavogsbæjar í Meltungu, austast í Fossvogsdal. Friðrik Baldursson garðyrkjustjóri Kópavogs og fulltrúi frá Sögufélaginu sjá um leiðsögn.

Gróðursetning í trjásafnið í Meltungu hófst árið 1996 og er þar nú að finna um 1.200 tegundir og yrki trjáa og runna, margra sjaldgæfra, og er safnið orðið eitt það stærsta sinnar tegundar hérlendis. Í trjásafninu er að finna þemagarða og -svæði, s.s. Rósagarðinn, Yndisgarðinn, Aldingarðinn, Sígræna garðinn, Aspaskóginn, garðlöndin o.fl. Sjón er sögu ríkari.

Mæting er við bílastæðin við austurenda Kjarrhólma mánudaginn 15. september kl. 17:00 og er áætlað að göngunni ljúki á sama stað um kl. 18:30.

Fræðslugangan er hluti af viðburðum á vegum Kópavogsbæjar á sjötugasta afmælisárinu.