Fræsöfnun í Trjásafninu Meltungu 23. ágúst

Fræsöfnun í Trjársafni
Fræsöfnun í Trjársafni

Fræbanki Garðyrkjufélags Íslands efnir til fræðslu um söfnun og meðhöndlun fræja fimmtudaginn 23. ágúst  í trjásafninu í Meltungu í Kópavogi, austast í Fossvogsdal.

Fræðslan hefst kl 17:30og lýkur um kl. 19:00. Áhersla verður að þessu sinni lögð á söfnun fræja af fjölærum plöntum.

 Nú er rétti tíminn til að fylgjast með þroskun fræja í garðinum, sumarbústaðalandinu og nánasta umhverfi. Sérfræðingar fræbankans ætla með þátttakendum að safna fræjum og skoða hvernig fræ hinna ýmsu tegunda líta út og hvenær þau eru þroskuð. Þá verður kennd meðhöndlun fræja, til að mynda þurrkun, geymsla og pökkun þeirra. Gefin verða góð og hagnýt ráð um sáningar og margt fleira. 

 Safnast verður saman neðst í Kjarrhólma í Kópavogi þar sem leiðbeinendur taka á móti þátttakendum. 

Leiðbeinendur verða:

Barbara Stanzeit,

Sigþóra Oddsdóttir,

Steinunn Garðarsdóttir og

Kristinn H. Þorsteinsson.

Stjórnandi verður Friðrik Baldursson garðyrkjustjóri Kópavogs.

Takið með ykkur klippur, blýant og blað eða merkimiða og slatta af pokum til að setja fræin í.

Árlega gefur Fræbanki Garðyrkjufélagsins út frælista og í góðu árferði má þar finna fræ af hátt í 1.000 tegundum plantna. Fræbankanum berst mikið magn fræja frá félagsmönnum Garðyrkjufélagsins sem er helsta uppistaða fræbankans. Sérstök frænefnd vinnur úr fræsendingum, flokkar og pakkar og með hækkandi sól er frælistinn gefinn út og þar geta félagsmenn pantað sér fræ ýmissa trjáa og runna, fjölærra plantna, sumarblóma og matjurta.

 Fræðslan um söfnun og meðhöndlun fræja er liður í samstarfsverkefni Kópavogsbæjar og Garðyrkjufélagsins með þátttöku Yndisgróðursverkefnisins.