Framúrskarandi nýstúdentar MK fengu viðurkenningu

Elísabet Sveinsdóttir, forseti bæjarstjórnar Kópavogs, Una Karen Guðmundsdóttir,  Tinna Sædís Ægisd…
Elísabet Sveinsdóttir, forseti bæjarstjórnar Kópavogs, Una Karen Guðmundsdóttir, Tinna Sædís Ægisdóttir, nýstúdentar og Guðríður Hrund Helgadóttir skólameistari MK.

Tveir nýstúdentar úr Menntaskólanum í Kópavogi, þær Una Karen Guðmundsdóttir og Tinna Sædís Ægisdóttir, hlutu viðurkenningu úr Viðurkenningarsjóði MK við útskrift skólans.

Elísabet Berglind Sveinsdóttir, forseti bæjarstjórnar Kópavogs veitti viðurkenninguna en sjóðurinn var stofnaður af bæjarstjórn Kópavogs árið 1993 í tilefni af 20 ára afmæli skólans og hefur það að markmiði að verðlauna framúrskarandi námsárangur nemenda.

Una Karen Guðmundsdóttir, var dúx skólans meðaleinkunn upp á 9,84. Tinna Sædís Ægisdóttir hlaut hæstu meðaleinkunn í verknámi. Styrkupphæð var 175.000 kr.