Ganga um Þríhnúkagíga

Þríhnúkagígur genginn.
Þríhnúkagígur genginn.

Boðið er upp á göngu að Þríhnúkum í Íþróttaviku Evrópu, laugardaginn 30.september. Hist er við Breiðabliksskála í Bláfjöllum kl.10.00. Einar Skúlason leiðir.

Gengið er um hraun, móa og mela að Þríhnúkum þar sem hinn fræga Þríhnúkagíg má finna og jafnframt kíkja á flak af herflugvél sem fórst árið 1945. Það er fallegt útsýni yfir höfuðborgarsvæðið frá Þríhnúkum og þetta er skemmtilegt svæði þar sem má sjá sprungur og misgengi, hraun og gíga og minnir okkur á að þetta er virkt eldfjallasvæði.

Öll velkomin, enginn aðgangseyrir.

Nánar:

Byrjað er á að ganga stikuðu leiðina að Þríhnúkagíg frá skíðaskála Breiðabliks. Þar er litamst um og farið upp á einn eða fleiri af Þríhnúkum. 

Þaðan er genginn stuttur spölur yfir að hinum stikaða Reykjavegi (á svipuðum slóðum og Heiðarvegur var fyrr á öldum) honum fyglt aftur á upphafsstað.

Gengið er á göngustíg að Þríhnúkum og eftir það í grasi, móum og sumpart grýttum melum og að hluta í hrauni þegar við förum eftir Reykjavegsleiðinni.

Vegalengd er um 8 km

Uppsöfnuð hækkun ca 200 m

Göngutími gæti orðið 2-2,5 tímar með stoppum.

Bílastæði

Bílastæði við skíðaskála Breiðabliks og lagt af stað í gönguna kl.10.00

Útbúnaður

Gott er að mæta í skóm með grófum botni og stafir hjálpa. Nóg að drekka og gott að mæta með smávegis nestisbita eða orkubita til að stinga upp í sig. Takið með skelina, amk jakkann. Húfu, vettlinga og flíspeysu eða annað slíkt sem millilag.