- Íbúar
- 0-6 ára börn
- Grunnskólaaldur
- Ungmenni
- Námskeið fyrir börn og fjölskyldur
- Heimili
- Fatlað fólk
- Eldra fólk
- Félagsleg úrræði
- Stuðningur við börn og fjölskyldur þeirra
- Þjónustuver og neyðarsímar
- Mannlíf
- Umhverfi
- Stjórnsýsla
Föstudaginn 7. nóvember verður gengið gegn einelti í öllum skólahverfum bæjarins. Leik- og grunnskólabörn ganga saman í fylgd kennara og starfsfólks skólanna. Markmið göngunnar eru að stuðla að jákvæðum samskiptum, vekja athygli á því ofbeldi sem einelti er og að það sé aldrei liðið.
Í tilefni göngunnar fá leik- og grunnskólabörn afhent endurskinsmerki með merki bæjarins öðrum megin og orðunum: Gegn einelti, hinum megin. Kópavogsbær efndi í fyrsta sinn til svona göngu í fyrra og tókst svo vel til að ákveðið var að endurtaka leikinn í ár.
Níu skólahverfi eru í Kópavogi og verður lagt af stað í göngu gegn einelti á tímabilinu 9.30 til 10.00.
Dagskrá 7. nóvember 2014 í hverfum bæjarins í tilefni af degi eineltis | ||
Hverfi | Aðilar | Dagskrá |
Miðbærinn | Kjarninn, Kópavogsskóli, Skólatröð | Gangan hefst kl. 9:30 við Kópavogsskóla og haldið að Hlíðargarði áætlað að vera þar kl 9:50. Þar sameinast tvö hverfi með sameiginlega dagskrá. Að lokinni dagskrá ganga allir saman að Kópavogsskóla. |
Smárahverfi | Þeba, Smáraskóli, Lækur, Arnarsmári | Gangan hefst kl. 9:30 við Smáraskóli og haldið að Hlíðargarði áætlað að vera þar kl 9:50. Þar sameinast tvö hverfi með sameiginlega dagskrá. Að lokinni dagskrá ganga allir saman að Smáraskóli. |
Snælandshverfi | Igló, Snælandsskóli, Furugrund, Grænatún, Álfatún | Gangan hefst kl. 10:00 við Snælandsskóla og gengið er saman í Fossvogsdalnum. Eftir gönguna verður farið í sal Snælandsskóla þar sem sungnir verða nokkrir vinasöngvar. |
Álfhólfsskólahverfi | Pegasus, Álfhólfsskóli, Álfaheiði, Efstihjalli, Fagrabrekka, Kópahvoll | Gangan hefst kl. 10:00 við Álfhólsskóla (Hjalla), nemendur marsera út í leikkólana til að sækja leiksskólabörnin. Gangan endar í íþróttahúsinu Digranesi þar sem fram fer fjöldasöngur og sameiginlegur frumsaminn dans.. |
Lindahverfi | Jemen, Lindaskóli, Dalur, Núpur | Gangan hefst kl. 8:55 frá Lindaskóla og liggur leiðin fyrst í leikskólann Dal þar sem unglingar para sig við börnin og leiða þau í göngunni, haldið í leikskólann Núp (kl.9.30)og sama fyrirkomulag þar sem unglingar para sig við leikskólabörnin. Endað á planinu/íþróttahúsinu í Lindaskóla. |
Kórahverfi | Kúlan, Hörðuvallaskóli, Baugur | Gangan hefst kl. 9:40 við Hörðuvallaskóla, þar sem leik- og grunnskólabörn ganga saman í Kórinn. Þar verður skipt upp í hópa og farið í hópeflisleiki við allra hæfi. |
Vatnsendahverfi | Dimma, Vatnsendaskóli, Aðalþing, Sólhvörf | Gangan hefst kl. 10:00 frá útsýnisskífunni í Grandahvarfi. Gengið verður upp í Vatnsendaskóla þar sem allir taka þátt í Zumba- dansi. |
Kársneshverfi | Ekkó, Kársnesskóli, Urðarhóll, Kópasteinn, Undraland, Marbakki. | Nemendur í 9. og 10. bekk fara með endurskinsmerki í leikskólana sem Kópavogsbær gefur öllum leik – og gunnskólabörnum. Unglingarnir munu sjá um samverustund og lesa fyrir börnin í leikskólunum. Auk þess verður unnið í öllum árgöngum grunnskólans í ákveðnum verkefnum sem tengjast yfirskrift dagsins |
Salahverfi | Fönix, Salaskóli, Rjúpnahæð, Fífusalir | Nemendurnir 9. og 10. bekkjar fara í heimsókn í leikskólana og vinna með börnunum að ýmsum verkefnum sem tengjast verkefninu Vinir úr Salaskóla sem er samstarfsverkefni við leiksskólana Fífusali og Rjúpnahæð. Nemendur í 7. og 8. bekk Salaskóla sjá um útivist með yngri nemendum. |