Gervigrasvöllur við Stelluróló

Malarvöllur við Stelluróló verður lagður gervigrasi.
Malarvöllur við Stelluróló verður lagður gervigrasi.

Verið er að undirbúa gerð gervigrasvallar við gæsluvöllinn Holtsvöll, sem betur er þekktur sem Stelluróló, og hefst lagning hans í vikunni 28.júní til 2.júlí. Núverandi malarvöllur verður lagður gervigrasi, og kemur þessi völlur í stað gervigrasvallar við Skólagerði. Hann fer undir framkvæmdasvæði vegna nýrrar skólabyggingar Kársnesskóla Skólagerði.

Hinn nýi gervigrasvöllur er á baklóð við Borgarholtsbraut, en gengið er að honum á milli Borgarholtsbrautar 69 og 71.

Á Kársnesinu eru auk þess gervigrasvöllur milli Sæbólsbrautar og Hafnafjarðarvegar og við Ásbraut. Þá eru fótboltamörk á Rútstúni.