Grænfáni í Álfaheiði

Anna Rósa Sigurjónsdóttir leikskólastjóri, Ósk Kristjánsdóttir frá Landvernd og Ásdís Kristjánsdótt…
Anna Rósa Sigurjónsdóttir leikskólastjóri, Ósk Kristjánsdóttir frá Landvernd og Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri ásamt nemendum í Álfaheiði.
Leikskólinn Álfaheiði dró Grænfánann að húni föstudaginn 23.maí og er þetta í níunda sinn sem fulltrúi Landverndar afhendir leikskólanum Grænfána.
 
Grænfáninn er alþjóðleg viðurkenning fyrir góða frammistöðu í menntun til sjálfbærni og fyrir að leggja sitt af mörkum til þess að efla og bæta umhverfismál innan skólans og í nærsamfélaginu.
 
Elsku börnin á leikskólanum sáum athöfnina, sem var hin skemmtilegasta. Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri sótti leikskólann heim af þessu tilefni, fylgdist með og skoðaði að lokum skólann undir leiðsögn Önnu Rósu Sigurjónsdóttur leikskólastjóra en hann var tekinn í notkun á nýjan leik í vetur að undangengnum verulegum endurbótum.