Hamraborg Festival verði endurtekið

Stefnt er að því að endurtaka leikinn að ári liðnu.
Stefnt er að því að endurtaka leikinn að ári liðnu.

Hamraborg Festival var haldin í fyrsta skipti í ár en hátíðin stóð yfir frá 26. ágúst til og með 29. ágúst. Listahátíðin er innblásin af og tileinkuð Hamraborginni. 

 

Yfir fimmtíu listamenn tóku þátt í hátíðarhöldunum. Vegglistamenn fengu að spreyta sig á veggjum Hamraborgarinnar, tónlist var flutt bæði í Salnum og á Catalinu, og í annarri hverri búð voru haldnar sjálfstæðar myndlistarsýningar eftir gjörólíka listamenn. Hátíðinni lauk sunnudaginn 29. ágúst, eftir öflugt lokahóf á Catalinu kvöldið áður.

 

Listrænir stjórnendur hátíðarinnar eru myndlistarkonan Joanna Pawlowska, rithöfundurinn Snæbjörn Brynjarsson, grafíski hönnuðurinn Sveinn Snær Kristjánsson og listakonan Ragnheiður Bjarnarson en þau reka saman menningarkjarnann Midpunkt sem starfað hefur í Hamraborginni síðan 2018.

 

Hátíðin var vel heppnuð og stefnt er að því að endurtaka leikinn að ári liðnu. Listrænir stjórnendur Hamraborg Festival þakka öllum sem mættu á hátíðina og glæddu hana lífi ásamt listamönnum sem gáfu tíma sinn og vinnu svo listahátíðin yrði að veruleika.